Viðburðir

28.10.2010, kl.20:00 - 22:00 Atburðir

Söngvaveisla á Tónum við hafið

 

Á næstu tónleikum "Tónar við hafið" í ráðhúsinu í Þorlákshöfn, verður boðið upp á söngveislu. Tónleikarnir verða fimmtudaginn 28. október. Það er sunnlenska sHlín Pétursdóttir og Hrönn Þráinsdóttir með tónleikaópransöngkonan Hlín Pétursdóttir Behrens sem flytur úrval innlendra og erlendra sönglaga og óperuaría ásamt píanistanum Hrönn Þráinsdóttur. Hlín þarf vart að kynna, en eftir að hafa starfað erlendis um árabil býr hún nú á Íslandi, kennir söng á Selfossi og í Reykjavík og syngur á tónleikum bæði hér heima og á erlendri grund. Hrönn Þráinsdóttir stundaði nám í píanóleik í Þýskalandi, með sérstaka áherslu á meðleik með söngvurum. Hún leikur með kammersveitinni Ísafold og kennir m.a. við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarskólann í Reykjavík. Á efnisskrá eru einstaklega aðgengileg og fjölbreytt verk, m.a. eftir sunnlensku tónskáldin Friðrik Bjarnason og Elínu Gunnlaugsdóttur auk sönglaga eftir Sigfús Halldórsson, Sigvalda Kaldalóns, Felix Mendelsohn-Bartholdy og Franz Schubert. Einnig verða fluttar óperuaríur eftir Händel, Menotti og Verdi.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Almennt miðverð er 1.500 krónur.

 


Tungumál



Skrúðganga úr græna hverfinu á Hafnardögum

Útlit síðu: