Viðburðir
| 27 nóv. 2010 | 28 nóv. 2010 »
Stórtónleikar með Diddú, blásurum og Söngfélaginu
Diddú og drengirnir halda tónleika í Þorlákskirk
ju á tónleikum Tóna við hafið, laugardaginn 27. nóvember kl. 17:00 og verður Söngfélag Þorlákshafnar undir stjórn Róberts Darling hópnum til fulltingis. Á efnisskránni eru m.a. nokkur af fegurstu verkum tónbókmenntanna fyrir sópran og kór.
Tónlistarhópurinn Diddú og drengirnir hefur starfað síðan 1997. Hann kemur árlega fram á aðventutónleikum í Mosfellskirkju en hefur auk þess haldið tónleika víða um land. Hópinn skipa Sigrún Hjálmtýsdóttir, klarínettuleikararnir Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, hornleikararnir Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson og fagottleikararnir Brjánn Ingason og Björn Th. Árnason.
Sigrún er löngu þjóðþekkt persóna og hlýtur að teljast fjölhæfasta söngkona sem Ísland hefur alið. Hljóðfæraleikararnir hafa um árabil verið áberandi í íslensku tónlistarlífi; Sigurður, Emil, Þorkell og Brjánn starfa í Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kjartan er skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík og Björn skólastjóri Tónlistarskóla F.Í.H. Söngfélag Þorlákshafnar hefur verið starfrækt í 50 ár og fagnar því á þessu ári stórafmæli. Söngfélagið hefur staðið fyrir margvíslegum viðburðum til að fagna afmælinu og er þátttaka á þessum tónleikum síðasti liður í dagskrá þessa viðburðaríka hausts hjá kórnum.
Almennt miðaverð er 1.500 krónur en ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri.

