Viðburðir

| 27 jan. 2012 |

27.01.2012, kl.20:00 - 23:00 Atburðir

Karaoke keppni fyrirtækja

Fyrsta keppnin í söngvarakeppni fyrirtækja í Ölfusi verður föstudagskvöldið 27. janúar í Ráðhúskaffi. Vegna mikillar þátttöku verða haldnar tvær undankeppnir og síðan úrslitakvöld. Keppnin er haldin til að safna fjármagni í skólahreystibraut við íþróttahúsið í Þorlákshöfn. Fyrirtæki greiða 10.000 krónur fyrir þátttöku og síðan er skemmtanagildið það sem mestu máli skiptir.

Fyrsta kvöldið verður sem fyrr segir á föstudagskvöldið þar sem fyrstu fyrirtækin keppa. Húsið opnar klukkan 20:00. Allir eru hvattir til að mæta og eiga góða stund saman, hvetja keppendur og njóta góðrar skemmtunar.

Miðaverð 1000 krónur.

 


Tungumál




Skrúðganga úr græna hverfinu á Hafnardögum

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica