Viðburðir

| 28 jan. 2012 |

28.01.2012, kl.16:00 - 17:00 Atburðir

Tónleikar Tóna og Trix

Tónar og Trix er tónlistarhópur eldri borgara í Ölfusi sem stofnaður var vorið 2007 og hefur æft vikulega síðan þá. Hópurinn leikur á margskonar hljóðfæri, semur sína eigin tónlist og syngur líka dægurlög frá ýmsum tímabilum. Þar má nefna slagara eins og Gordjöss og Vegir liggja til allra átta ásamt fleiri skemmtilegum lögum frá gömlu, góðu tímunum.

Á laugardaginn n.k. munu Tónar og Trix halda tónleika í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn kl. 16.00 og er aðgangseyrir kr. 1000.- sem rennur í hljóðfærasjóð Tóna og Trix.

Verið hjartanlega velkomin á þessa skemmtun.

 


Tungumál




Skrúðganga úr græna hverfinu á Hafnardögum

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica