Viðburðir

09.08.2012 - 11.08.2012 Atburðir

Ferð í Þakgil á vegum Ferðamálafélags Ölfuss

 

Gönguferð Ferðamálafélags Ölfus

Mýrdalur-Þakgil

 

Þann 9-12. ágúst nk. mun Ferðamálafélag Ölfuss standa fyrir göngu um svæðið Mýrdalur-Þakgil. Um er að ræða fjögurra daga ferð sem hentar fólki á öllum aldri. Farið verður á eigin bílum og gist verður í Þakgili. Þar er mögulegt að fá gistingu í tveimur smáhýsum sem alls hafa fjögur svefnrými í hverju húsi. Leiga fyrir smáhýsi per. nótt er 15.000 kr. 

 

Ferðatilhögun er eftirfarandi:

Fimmtudaginn 9. ágúst - Klukkan10:00 verður lagt af stað frá Bakaríinu í Þorlákshöfn og ekið austur í Mýrdal. Gengið verður úr Þakgili yfir í Reimundargil og þaðan í skarðið á milli Vatnsrásarhöfuðs og Austureggja,gangan tekur 5 klst.

Föstudagurinn 10. ágúst
–Gengið verður  Þakgili-Mælifell-Barð, gangan tekur 6-7 tíma.

Laugardagurinn 11. ágúst – Gengið verður frá Falli í Heiðardal að Gæsavatni og til baka niður í Hvammsdal,gangan tekur 8klst.

Sunnudagurinn 12 ágúst – Ekið verður heim á leið til Þorlákshafnar.  Ef veður og aðstæður leyfa verður gengið á Hjörleifshöfða á heimleiðinni,gangan tekur 2-3 tíma.

Thakgil

Mikilvægt er að skráning í ferðina berist á netföngin maria.sigurdardottir@or.is eða vigdis.brynjolfsdottir@airatlanta.com fyrir 7. ágúst nk.  Farastjóri er Vigfús Gíslason.

 

Allir velkomnir

Stjórn Ferðamálafélags Ölfuss

 

 

 

 


Tungumál



Skrúðganga úr græna hverfinu á Hafnardögum

Útlit síðu: