Starfsfólk Grunnskólans í Þorlákshöfn óskar nemendum og foreldrum/forráðmönnum þeirra gleðilegra páska.
Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 2. apríl samkvæmt stundaskrá.
Á morgun, fimmtudaginn 21. mars er alþjóðlegi Downs heilkennadagurinn. Þá er fólk hvatt til að ganga um í ósamstæðum og litskrúðugum sokkum til að draga fram fjölbreytileikann og til að minna á mikilvægi hans í samfélaginu. Dagsetningin er táknræn, hún vísar til þess að Downs heilhennið er orsakað a…
Í síðustu viku fengum við heimsókn frá starfsmönnum Alþingis en markmiðið með heimsókninni var að kynna starfssemi löggjafarsamkomunnar fyrir nemendum í 9. og 10. bekk.
Farið var í gegnum hefbundin störf Alþingis. Kynning var á frumvarpi, það sett í nefnd og síðan fór fram þingfundur sem endaði me…
Nemendur unglingastigs fóru í skíðaferð í vikunni. Ferðin var samstarfsverkefni skólans, nemendaráðs og félagsmiðstöðvarinnar. Haldið var í Bláfjöll á miðvikudag, skíðað af krafti fram eftir degi og síðan gist í skíðaskála um nóttina. Þreyttir en sælir nemendur héldu síðan heim daginn eftir.
Ánægju…
Glitraðu með einstökum börnum
Á morgun, fimmtudaginn 29. febrúar er alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Þá hvetur félag Einstakra barna öll til að sýna stuðning og samstöðu með því að klæðast einhverju glitrandi.
Hjá okkur eru nemendur sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni og þv…
Reglulega hittast nemendur á sal og taka lagið. Þessa viðburði köllum við söngstund en þá koma vinabekkir saman og syngja lög sem æfð hafa verið dagana á undan.
Í dag var einmitt söngstund. Arna Dögg Sturludóttir stjórnaði viðburðinum eins og henni einni er lagið og tóku nemendur undir af miklum kr…
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur eru alltaf skemmtilegir í skólanum. Allir nemendur og starfsfólk fengu bollur í hádeginu á bolludaginn og baunasúpan á sprengidaginn þótti með eindæmum góð.
Öskudagurinn er þó alltaf viðburðarríkastur. Flestir nemendur og starfsfólk mætir í búningum og má sjá ý…
Á haustmánuðum var textasamkeppnin Fernuflug á vegum Mjólkursamsölunnar þar sem nemendur í 8.-10. bekk voru hvattir til að velta fyrir sér spurningunni "Hvað er að vera ég ?" . Það voru rúmlega 1200 textar sem bárust í keppnina og dómnefnd valdi 48 farmúrskarandi texta til að birta á fernunum. Olive…
Foreldrafélag Grunnskólans í Þorlákshöfn og Leikskólans Bergheima halda Öskudagsball 14. febrúar nk. kl: 17-19 í Ráðhúsinu. Frítt er inn á ballið en börn 2013 og yngri verða að koma í fylgd með fullorðnum.
Í dag fór fram rýmingaræfing í grunnskólanum en hún var haldin í tilefni 112 dagsins sem er á sunnudaginn. Æfingar sem þessar eru haldnar reglulega til að skerpa á verkferlum og þjálfa nemendur og starfsfólk í réttum viðbrögðum.
Æfingin gekk vel sem sýnir að reglulegar æfingar eru nauðsynlegar og s…