Ganga á vegum Ferðamálafélags Ölfuss. Blákollur - Nyrðri Eldborg.

Ferðamálafélag Íslands stendur fyrir göngu upp á Blákoll - Nyrðri Eldborg.

Blákollur stendur við sunnanvert Hafnarfjall. Hann ber einnig nafnið Ölvir eða jafnvel Ölver. Fyrrum var það aðeins toppur fjallsins sem var kallaður Blákollur. Í þjóðsögum segir af þursinum Ölvi sem átti heima í fjallinu og viðureign Hallgríms Péturssonar skálds við kauða. Hallgrímur lét frýja sig til þess að kveða Ölvi úr híbýlum sínum og átti svo í megnustu vandræðum með að kveða hann niður, en að lokum dagaði Ölvi uppi og varð hann að steini. (www.utivist.is).

Göngustjóri er Davíð Davíðsson.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?