Sveitarfélagið Ölfus tekur þátt í Hreyfiviku UMFÍ og mun bjóða upp á ýmsa hreyfitengda viðburði í vikunni.
Dagskrá í Þorlákshöfn
Mánudagur 29. maí
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
Kl. 06:00. Spinning í ræktinni hjá Sóley.
Kl. 06:00. Hópeinkaþjálfun í ræktinni hjá Steinari.
Kl. 10:20. Leikfimi fyrir eldri borgara í íþróttahúsinu í umsjá Hildigunnar sjúkraþjálfara.
Kl. 17:30. Jóga hjá Sóley í Jógahorninu að Unubakka 4.
Kl. 19:00. Ferðamálafélag Ölfuss gönguferð fyrir alla fjölskylduna. Skötubót – fjaran – göngustjóri Þórhildur Ólafsdóttir. Lagt af stað frá Meitlinum Selvogsbraut 41
Þriðjudagur 30. maí.
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
Tilvalið að ganga eða hlaupa heilsuhringinn sem byrjar við íþróttamiðstöðina.
Kl. 09:40 Boccia æfing hjá eldri borgurum í íþróttahúsinu.
Miðvikudagur 31. maí.
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
Kl. 06:00. Spinning í ræktinni hjá Sóley.
Kl. 06:00. Hópeinkaþjálfun í ræktinni hjá Steinari.
Kl. 10:00. Stólaleikfimi fyrir eldri borgara á 9. unni í umsjá Hildigunnar sjúkraþjálfara.
Kl. 11:10. Boccia æfing hjá eldri borgurum í íþróttahúsinu.
Kl. 16:15. Jóga hjá Sóley í Jógahorninu að Unubakka 4.
Minnum á myllumerkin #minhreyfing og #umfi
Fimmtudagur 1. júní.
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
Kl. 06:00. Hópeinkaþjálfun í ræktinni hjá Steinari.
Kl. 17:00. Hópeinkaþjálfun í ræktinni hjá Steinari.
Kl. 18:00. Fjölskyldubadminton í íþróttahúsinu.
Föstudagur 2. júní.
Göngum eða hjólum í vinnuna eða skólann, munum að hafa hjálm.
Frítt í sund fyrir alla sem synda 200 m.
Kl. 06:00. Spinning í ræktinni hjá Sóley.
Laugardagur 3. júní
Fjölskyldan saman í sund, fallgöngu, göngu- eða hjólatúr.
10:00. Spinning í ræktinni hjá Sóley.
Tilvalið að ganga eða hlaupa heilsuhringinn sem byrjar við íþróttamiðstöðina.
Sunnudagur 4. júní.
Kl. 12:00. Fjölskyldubadminton í íþróttahúsinu.
Tilvalið að ganga eða hlaupa heilsuhringinn sem byrjar við íþróttamiðstöðina.
Frítt í ræktina í tilefni af hreyfivikunni.
Sundkeppni
Í tiefni af Hreyfiviku UMFÍ verður sundkeppni á milli sveitarfélaga. Keppnin fer fram dagana 29. maí - 4. júní, báðir dagar meðtaldir.
Þátttakendur skrá sig á eyðurblað sem liggur frammi í afgreiðslu sundlaugar hversu marga metra er synt á hverjum degi.
Meira um Hreyfivikuna:
Hreyfivikan "MOVE WEEK" fer fram um gjörvalla Evrópu dagana 29.maí - 4.júní 2017. Hreyfivikan ”MOVE WEEK” er hluti af “The NowWeMove 2012-2020 ” herferð International Sport and Culture Association (ISCA) sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum til heilsubótar.
Framtíðarsýn herferðarinnar er “að 100 milljónir fleiri Evrópubúa verði orðnir virkir í hreyfingu og íþróttum fyrir árið 2020” ”að fólk finni SÍNA hreyfingu sem hentar því”.
Hreyfivikan er almenningsíþrótta verkefni á vegum Ungmennafélag Íslands í samstarfi við yfir 200 grastrótarsamtök í Evrópu sem öllu eru aðilar að International Sport and Culture Association (ISCA).
Sambandsaðilar UMFÍ munu taka virkan þátt í Hreyfivikunni ”MOVE WEEK” og bjóða upp á fjölda viðburða og tækifæra fyrir fólk til að kynna sér fjölbreytta hreyfingu sér til heilsubótar.
PROMOCJA AKTYWNOŚCI FIZYCZNEJ
CZYM JEST MOVE WEEK?
MOVE Week jest coroczną imprezą o zasięgu europejskim, prezentującą korzyści wynikające z aktywnego trybu życia oraz regularnego uprawiania sportu.
KIM JEST AGENT RUCHU?
Agenci Ruchu są gwiazdami MOVE Week. To dzięki nim MOVE Week w ogóle istnieje. Agent Ruchu może mieć wiele twarzy. Dowiedz się jak zostać Agentem Ruchu.
UCZESTNICY
Wraz z 1 milionem uczestników w 2014 roku, MOVE Week stał się największym corocznym wydarzeniem w Europie promującym korzyści aktywnego trybu życia.
http://poland.moveweek.eu/
PROMOTING PHYSICAL ACTIVITY
WHAT IS MOVE WEEK?
MOVE Week is an annual Europe-wide event showcasing the benefits of being active and participating regularly in sport and physical activity.
WHAT IS A MOVE AGENT?
MOVE Agents are the stars of MOVE Week. They make MOVE Week happen. A MOVE Agent can have many faces. Learn more about becoming a MOVE Agent.
PARTICIPANTS
With 1 million participants in 2014, MOVE Week has become the biggest annual week in Europe promoting the benefits of regular participation in sport and physical activity.
http://uk.moveweek.eu/