Jól við hafið

Jól við hafið 2019 verða sannkallaðir stórjólatónleikar, stútfullir af jólatónlist sem Íslendingar þekkja og elska. í stuttu máli: himneskur söngur, herskarar prúðbúinna hljóðfæraleikara og sannkallað jólaævintýraland sem boðið verður upp á!

Lúðrasveit Þorlákshafnar heldur áfram að vinna í metnaðarfullum tónleikum og uppákomum. Nú fær sveitin til liðs við sig stórsöngvarana og dásemdarfólkið Guðrúnu Gunnarsdóttur og Jógvan Hansen. Jólalagavalið er fjölbreytt og voru Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir og Eiríkur Rafn Stefánsson fengin til að útsetja sérstaklega þau lög sem söngvaranir flytja með lúðrasveitinni. Auk þess mun Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar verða breytt í jólahöll og það vita þeir sem áður hafa sótt viðburði á vegum lúðrasveitarinnar að verður ekkert hálfkák! Frábær skemmtun og upplifun fyrir unga sem aldna og dásamleg byrjun á aðventunni.

Sem fyrr segir verða tónleikarnir í Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar laugardaginn 30. nóvember og hefjast kl. 15:00.
Miðasala á midi.is og í Kompunni í Þorlákshöfn.
Miðaverð 4.900 kr.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?