Kántrý jól á Hendur í höfn

Hljómsveitin Arna og englahjörðin mun spila þann 6. desember á Hendur í höfn. Þau munu flytja jólalög í kántrý stíl og lofa að koma öllum viðstöddum í hið eina sanna jólaskap.

Hljómsveitin sló í gegn í bræðslunni á bæjarhátíðinni Hamingjan við hafið og hefur nú bæst í hópinn einn af fremstu píanóleikurum landsins.

Í hljómsveitinni eru:
Arna Dögg Sturludóttir
Jón Þorleifur Steinþórsson
Hermann Jónsson
Tómas Jónsson

Aðgangseyrir kr.3.500 og miðasala er á www.midi.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?