Kósý jólakvöld með hljómsveitinni Kalí á Hendur í höfn

Hljómsveitin Kalí er skipuð fjórum ungum og hæfileikaríkum stúlkum úr Þorlákshöfn.
Þær ætla að halda jólatónleika á Hendur í höfn þann 18. desember þar sem þær flytja sín uppáhalds jólalög í eigin útsetningum ásamt frumsömdu efni.

Þetta eru ekkert venjulega efnilegar ungar konur sem eiga framtíðina fyrir sér og slógu meðal annars í gegn í barnadagskrá Hamingjunnar við hafið.

,,Það væri gaman að sjá sem flesta á þessari kósý stund með okkur" segja þær stöllur.

Miðasalan er á Hendur í höfn.
Miðaverð er 2.000 kr.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?