Það er nemendum og starfsfólki Garðyrkjuskóla Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi, sönn ánægja að bjóða þér/ykkur í opið hús á sumardaginn fyrsta.
Skólinn er opinn frá kl. 10 til 17. Sumarið er komið í garðskálanum og hægt er að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og pottaplöntusafninu. Verkefni nemenda í skrúðgarðyrkju verða til sýnis í verknámshúsinu og við inngang skólans. Kaffiveitingar og markaðstorg með garðyrkjuafurðir. Ýmiss konar afþreying er í boði fyrir börnin, s.s. andlitsmálun. Hátíðardagskrá verður kl. 14 - 15 (sjá neðar) þar sem afhent verða Garðyrkjuverðlaun LbhÍ, Umhverfisverðlaun Hveragerðis og Umhverfisverðlaun Ölfuss.
Hátíðardagskrá á Reykjum í Ölfusi
19. apríl 2018 kl. 14:00—15:00
Fundarstjóri: Björgvin Örn Eggertsson
14:00 – 14:05 Setning – Guðríður Helgadóttir staðarhaldari á Reykjum.
14:05 – 14:25 Garðyrkjuverðlaun 2018- Landbúnaðarráðherra Kristján Þór Júlíusson
14:25 – 14:30 Tónlistaratriði
14:30 – 14:40 Umhverfisverðlaun Hveragerðis 2018 – Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson
14:40—14:50 Umhverfisverðlaun Ölfuss 2018- Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson
14:50—14:55 Tónlistaratriði
14:55—15:00 Dagskrárlok