Sýningaropnun í Galleríinu undir stiganum: Málverk eftir Guðna Má Henningsson

Fimmtudaginn 23. ágúst opnar sýning á málverkum eftir Guðna Má Henningsson í Galleríinu undir stiganum á Bæjarbókasafni Ölfuss.
Guðni Már er ómenntaður í myndlist fyrir utan að hafa sótt einkatíma hjá Steinunni Helgu Sigurðardóttur árið 1990. Hann hefur verið að mála síðan þá. Guðni Már starfaði sem dagskrárgerðarmaður á RÚV frá 1994 þar til s.l. vor og er líklega þekktastur af Næturvaktinni á Rás 2 á laugardögum. Hann er fæddur í Bústaðahverfinu í Reykjavík en á ættir að rekja til Dalvíkur. Guðni Már hefur sent frá sér eina ljóðabók, Ljóð handa (1992) og bók í samstarfi við 5 ára dóttur sína Steinu Elenu. Bókin sú nefnist Það er rafmagnslaust hjá selunum (2016). Hann vinnur nú að matreiðslu ljóðabók. Hann var í hljómsveitinni TASS sem sendi frá sér geisladiskinn Almúgamenn (2012). Einnig sendi Guðni frá sér geisladiskinn Manstu þá vinda árið 2017. Guðni Már býr nú á Kanaríeyjum. 
Guðni leitar í tónlistina í verkum sínum og bera þau nöfn erlendra laga sem hann hefur mætur á. 
Boðið verður upp á kaffi og konfekt. Allir velkomnir!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?