| |
1. 1705020 - Versalir: Reglur vegna fjáraflana félagasamtaka | Reglur félagasamtaka vegna leigu á Versölum voru uppfærðar og samþykktar samhljóða. "Félagasamtök í Ölfusi fá afnot af Versölum án endurgjalds einu sinni á ári fyrir fjáröflun eða fund. Þetta gildir ekki um viðburði þar sem áfengi er selt. Félagasamtök í Ölfusi fá 40% afslátt af leiguverði á sölum. Félagasamtök sjá um að setja upp salinn og ganga frá þegar viðburði lýkur."
Nýjar reglur verða birtar á heimasíðu Ölfuss.
| | |
|
2. 1703007 - Viðburðir: Hafnardagar 2017 | Farið var yfir dagskrá Hafnardaga 10.-12. ágúst næstkomandi. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður fyrir alla fjölskylduna og hvetur nefndin sem flesta til að taka dagana frá.
| | |
|
3. 1702023 - Menningarmál: Viðburðir 2017 | Farið var yfir hugmyndir vegna aðventutónleika í Versölum 3. desember. Ýmsar góðar tillögur komu fram sem verða skoðaðar og viðburðurinn auglýstur í haust. | | |
|