| |
1. 1706015 - Fasteignir: Almennt um fasteignir. Erindi Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar. | Lagt fram bréf Íbúðalánasjóðs dags. 8. júní 2017 þar sem sveitarfélaginu er boðið til viðræðna um möguleg kaup á fasteignum í eigu sjóðsins í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar að skoða fasteignir sem í boði eru og leggja tillögur sínar í málinu fyrir næsta fund bæjarstjórnar/bæjarráðs. | | |
|
2. 1706003 - Leikskólinn Bergheimar: Endurnýjun elstu byggingar leikskólans | Lagt fram eitt tilboð sem barst í endurbætur á elstu byggingu Leikskólans Bergheima frá Trésmíðar Sæmundar ehf. sem buðu kr. 110.810.694. í verkið.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 88.385.083,-. Tilboðið er um 25% yfir kostnaðaráætlun.
Samþykkt samhljóða að taka tilboði Trésmíðar Sæmundar ehf. í verkið. | | |
|
3. 1606012 - Lögreglusamþykkt | Lögð fram sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélög í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi til fyrri umræðu. Forseti kynnti tillöguna og fór yfir helstu atriði hennae en hún verður lögð fyrir allar sveitarstjórnir á Suðurlandi.
Bæjarstjórn gerir athugasemdir við 12. og 27. gr. lögreglusamþykktarinnar.
12. gr. er alls ekki nægilega afgerandi, tekur bara á gistingu í tjöldum og sambærilegu innan byggðar. Lagt er til að greinin verði meira afgerandi, s.s.: "Óheimilt er að gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum, fellihýsum, tjaldvögnum og öðrum sambærilegum búnaði, utan skipulagðra tjaldsvæða nema með leyfi landeigenda.
Ákvæðið um yfirbreiðslu farms í 27. gr. er ekki nógu afgerandi, alltof matskennt er hvenær hætta er á að fjúki úr farmi og hvenær ekki. Mikilvægt er í ljósi þess að töluvert er um tjón á bílum sem fara um vegi í Ölfusi vegna foks úr farmi efnisflutningabíla að greinin verði meira afgerandi hvað flutnings farms varðar, s.s.: "Nota skal yfirbreiðslur þegar laust efni er flutt á opnum palli og það fíngert að hætta er á að það fjúki. Ávallt skal nota yfirbreiðslu þar sem leyfur umferðahraði er yfir 50 km/klst." Bæjarstjórn samþykkti síðan samhljóða að vísa lögreglusamþykktinni til síðari umræðu með framkomnum athugasemdum. | | |
|
4. 1706020 - Fræðslumál: Beiðni um endurnýjun samnings um tónlistarkennslu | Lögð fram beiðni um áframhaldandi samstarf sveitarfélagsins við Tónkjallarann ehf. v. Tónsmiðju Suðurlands og að gerður verði nýr samningur til lengri tíma milli aðila sem yrði uppsegjanlegur með sex mánaða fyrirvara.
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að ganga frá tillögu að samningi við skólann sem síðan yrði lagður fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu. | | |
|
5. 1704020 - Móttöku og flokkunarstöð Vesturbakka. | Skipulagslýsing fyrir móttöku- og flokkunarstöð við Vesturbakka var í kynningu til 22. júní 2017.
Samþykkt samhljóða að deiliskipulagstillagan fari í lögboðinn auglýsingarferil. | | |
|
6. 1706014 - Landgræðsla: Hugmynd að samstarfsverkefni um nýtingu seyru til uppgræðslu | Kynntar hugmyndir um samstarfsverkefni um nýtingu seyru til uppgræðslu. Málið var kynnt á fundi SBU 15. júní 2017 og liggur bókun SBU fyrir þar sem jákvætt var tekið í að málið yrði skoðað. Þættir sem skoðaðir yrðu væru hagkvæmni við að setja upp slíka stöð og hvaða land yrði tekið undir unna seyru. Umhverfisstjóri og bæjarstjóri yrðu tengiliður við Landgræðsluna og þau sveitarfélög sem kæmu að verkefninu. | | |
|
7. 1702008 - Deiliskipulag: Akurgerði frístundahús | Tillaga að deiliskipulagi fyrir þrjú hús til útleigu að Akurgerði var í auglýsingu til 10. júní s.l. Engar athugasemdir komu fram á auglýsingartímanum.
Tillaga að deiliskipulagi samþykkt samhljóða til afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda. | | |
|
8. 1706012 - Hjarðarból, óveruleg breyting á deiliskipulagi | Fyrir liggur samþykkt deiliskipulag fyrir 10 lóðir til að byggja á íbúðarhús innan reits Í8 á Hjarðbóli Ölfusi. Erindið var tekið fyrir í SBU 15. júní 2017.
Samþykkt samhljóða að unnir verði skilmálar fyrir deiliskipulagsbreytingu fyrir hesthúsið á svæðinu, gerð þess, hámarkshæð og lóðarfrágang. Í deiliskipulaginu skal einnig gera grein fyrir fráveitu, neyslu- og slökkvivatni. | | |
|
9. 1704021 - | Laxar ehf. leggja fram deiliskipulagstillögu fyrir uppbyggingu fiskeldis að Fiskalóni. Svæðið nær yfir land beggja vegna við þjóðveginn.
Skipulagslýsing var í kynningu til 22. júní 2017. Samþykkt samhljóða að deiliskipulagstillagan fari í lögboðinn auglýsingarferil. | | |
|
10. 1706001 - Skipulag: Aðalskipulag. Ósk um breytingu Aðalskipulags Ölfuss 2010-2022 í landi Árbæjar IV og heimild til deiliskipulagsgerðar á grundvelli hennar | Lögð fram ósk um breytingu á aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022 í landi Árbæjar IV og heimild til deiliskipulagsbreytingar á grundvelli hennar. Erindið er um breytta landnotkun en land Árbæjar IV er í aðalskipulagi skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Óskað er eftir að því verði breytt í íbúðasvæði og samhliða aðalskipulagsbreytingunni verði auglýst deiliskipulag af um 10 ha svæði.
Samþykkt samhljóða að heimila aðalskipulagsbreytingu og færa landnotkun úr landbúnaðarlandi í íbúðasvæði. Einnig að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið. Landeigandi geri grein fyrir fráveitumálum, neyslu- og slökkvivatni og veitum innan svæðisins | | |
|
11. 1506070 - Þorlákshöfn: Skipulagsmál á hafnarsvæði | Tillaga að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæðið í Þorlákshöfn tekin til afgreiðslu. Skipulagslýsing var í kynningu til 22. júní 2017.
Samþykkt samhljóða að aðalskipulagstillagan fari í lögboðinn auglýsingarferil. Tillaga að endalegu deiliskipulagi verði sérstaklega kynnt hagsmunaaðilum á hafnarsvæðinu. | | |
|
12. 1704023 - Deiliskipulag: Breyting í Búðahverfi. | Breyting var gerð í aðalskipulagi 2010-2022 og íbúðasvæðið var minnkað. Einnig er breyting á heimild til fjölgunar íbúða á lóðum fyrir par- og raðhús. Nýtingarhlutfall breytist ekki og byggingarreitur á lóð er sá sami og var í eldra skipulagi.
Skipulagslýsing var í kynningu til 22. júní 2017. Samþykkt samhljóða að deiliskipulagstillagan fari í lögboðinn auglýsingarferil. | | |
|
13. 1704028 - Skipulagsáform Hjarðarból | Kynnt áform um að skipuleggja fjórar einbýlishúsalóðir innan reits fyrir íbúðahús að Hjarðarbóli Ölfusi. Samþykkt aðalskipulag fyrir reitinn Í8 segir að svæðið sé skipulagt fyrir 10-15 íbúðahúsa lóðir. Innan svæðisins er deiliskipulag fyrir reit með 10 lóðum. Fyrir liggur tillaga um að breyta því skipulagi þannig að íbúðarhúsalóðir verði átta og tveimur lóðum verði breytt í eina hesthúsalóð.
Fyrirspurn um deiliskipulag fyrir allt að fjórum íbúðahúsalóðum á landi Grasnytja Hjarðarbóli er innan samþykktar í gildandi aðalskipulagi. Samþykkt samhljóða að heimila að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið. | | |
|
14. 1706024 - Hreinlætismál: Samningur um afnot af móttökustöð í Hveragerði | Lagður fram undirritaður samningur um afnot íbúa í dreifbýli Ölfuss af móttöku- og endurvinnslustöð Hveragerðisbæjar. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2017 og til 31. desember 2018.
Samningurinn samþykktur samhljóða.
| | |
|
15. 1506123 - Skóla- og velferðarmál: Fundargerðir NOS. | Fundargerð NOS frá 15. júní s.l. lögð fram.
Til kynningar.
Í lið 1. í fundargerðinni kemur fram:
"Nefndin samþykkir að tillögurnar ásamt kostnaðaráætlun breytinganna verða lagðar fram til samþykktar hjá aðildarsveitarfélögunum."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar tillögur f.h. Sveitarfélagsins Ölfuss. | | |
|
16. 1705005 - Fræðslumál: Stöðugildi við Leikskólann Bergheima og gjaldskrá | Eftirfarandi tillaga varðandi breytingu á vistunartíma leikskólans Bergheima lögð fram:
"Frá og með 17. ágúst 2017 verður boðið upp á vistun til 16.15 á Leikskólanum Bergheimum þ.e. hægt er að velja að hafa börnin í vistun til kl. 16.00 16:15 eða 17.00 eftir því sem hentar. Frá áramótum verður gjald tekið fyrir tímann á milli 7.30-8.00 og verður þá hægt að kaupa korter eða hálftíma. Gjald fyrir tímann frá 16:00-16:15 verður frá 17. ágúst n.k. kr. 1.522. en fyrir tímann frá 16:00-17:00 verður óbreytt kr. 5.090.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Þá óskar leikskólastjóri eftir í meðfylgjandi greinargerð eftir aukningu stöðugilda við leikskólann til þess að sinna sérkennslu við skólann.
Samþykkt samhljóða að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2018.
| | |
|
17. 1702004 - Fasteignir: Viðbygging íþróttahúss | Lagt fram tilboð M2 Teiknistofa ehf. að fjárhæð 3,4 m.kr. auk vsk. í aðalhönnun, vinnuteikningar, fundi og samskipti, útboðsgögn og hönnunarstjórnun vegna viðbyggingar við íþróttahúsið.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
18. 1706027 - Samstarf sveitarfélaga: Landssöfnunin vinátta í verki | "Vinátta í verki" landssöfnun vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi óskar eftir því að öll sveitarfélög á Íslandi taki þátt í því að senda Grænlendingum skýr og kærleiksrík skilaboð um samstöðu og vináttu.
Bæjarstjórn Ölfuss samþykkir samhljóða að leggja til 60 þús. kr. í söfnunina. | | |
|
19. 1706026 - Kosningar: Kjör forseta bæjarstjórnar og varaforseta og kosningar í ráð og nefndir skv. samþykktum | Lögð fram tillaga þess efnis að Sveinn Steinarsson verði kjörinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Lögð fram tillaga þess efnis að Anna Björg Níelsdóttir verði kjörin varaforseti bæjarstjórnar til eins árs.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Lögð fram eftirfarandi tillaga um skipan bæjarráðs Ölfuss til eins árs:
Aðalmenn:
Jón Páll Krístófersson Anna Björg Níelsdóttir Þrúður Sigurðardóttir Sigurlaug Gröndal áheyrnarfulltrúi
Varamenn:
Sveinn Steinarsson Ágústa Ragnarsdóttir Ármann Einarsson Guðmundur Oddgeirsson varaáheyrnarfulltrúi
Formaður:
Jón Páll Kristófersson
Varaformaður:
Anna Björg Níelsdóttir
Tillagan samþykkt samhljóða.
Lögð fram eftirfarandi tillaga um skipan kjörstjórnar við sveitarstjórnar-og alþingiskosningar til eins árs.
Aðalmenn:
Jón H. Sigurmundsson Guðlaugur Óskar Jónsson Ingveldur Pétursdóttir
Varamenn:
Alda Kristjánsdóttir Guðný Björg Óskarsdóttir Kolbrún Skúladóttir
Formaður:
Jón H. Sigurmundsson
Varaformaður:
Guðlaugur Óskar Jónsson
Tillagan samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
20. 1706025 - Fiskeldi: Beiðni um umsögn á fiskeldi Tálkna ehf. | Lagt fram erindi frá Skipulagsstofnun, dags. 21. júní 2017 þar sem óskað er umsagnar Sveitarfélagsins Ölfuss vegna áforma Tálkna ehf. um að reisa allt að 5 þús. tonna fiskeldisstöð í Þorlákshöfn.
Eftirfarandi bókun lögð fram:
"Kveðið er á um það að í umsögninni skuli koma fram eftir því sem við á hvort Sveitarfélagið Ölfus telji að nægjanlega vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun. Einnig óskar Skipulagsstofnun eftir því að í umsögn komi fram, eftir því sem við á, hvaða leyfum framkvæmdin er háð sem snúa að starfssviði sveitarfélagsins. Forsvarsmenn Tálkna ehf. hafa á öllum stigum undirbúnings verkefnisins borið áform félagsins undir forsvarsmenn sveitarfélagsins. Eins og sést í meðfylgjandi skýrslu með erindinu er ítarlega gerð grein fyrir verkefninu, umhverfi þess, mótvægisaðgerðum og vöktun. Aðstæður til fiskeldis á fyrirhuguðum stað er kjörnar til slíkrar starfsemi, mjög stutt er m.a. með fráveitu til sjávar og rask vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar og ásýndaráhrif eru í lágmarki. Svæðið er skilgreint í aðalskipulagi sveitarfélagsins til þessarar fyrirhuguðu starfsemi. Bæjarstjórn telur ekki ástæðu til þess að fyrirhuguð framkvæmd fari í mat á umhverfisáhrifum."
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
21. 1706006F - Hafnarstjórn Þorlákshafnar - 23 | Fundargerð hafnarstjórnar frá 29. júní s.l. lögð fram.
Fundargerðin staðfest samhljóða. | | |
|
22. 1706004F - Skipulags-, bygginga- og umhverfisnefnd - 83 | Fundargerð skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar frá 15. júní s.l lögð fram.
Fundargerðin staðfest samhljóða.
| | |
|
23. 1706003F - Markaðs- og menningarnefnd - 130 | Fundargerð markaðs- og menningarnefndar frá 9. júní s.l. lögð fram.
Fundargerðin staðfest samhljóða.
| | |
|
24. 1706001F - Bæjarráð Ölfuss - 289 | Fundaregerð bæjarráðs Ölfuss frá 8. júní s.l. lögð fram.
Fundargerðin staðfest samhljóða.
| | |
|
| |
25. 1605028 - Samstarf sveitarfélaga: Fundargerðir Héraðsnefndar Árnesinga 2016. | Fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga bs. frá 4. maí 2017 lögð fram.
Til kynningar. | | |
|
26. 1701026 - Brunamál: Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu. | Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 6. júní 2017 lögð fram.
Til kynningar. | | |
|
27. 1611032 - Almannavarnir: Fundargerðir almannavarnarnefndar Árnessýslu 2016. | Fundargerð Almannavarnarnefndar Árnessýslu frá 7. júní 2017 lögð fram.
Til kynningar. | | |
|
28. 1607014 - Skóla- og velferðarmál: Fundargerðir skólaþjónustu- og velferðarnefndar 2016-2018 | Fundargerð Skólaþjónustu- og velferðarnefndar Árnesþings frá 20. júní 2017 lögð fram.
Til kynningar. | | |
|
29. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga: Fundargerðir stjórnar SASS 2016-2018 | Fundargerð stjórnar SASS frá 21. júní 2017 lögð fram.
Til kynningar. | | |
|