| |
1. 1712002 - Framkvæmdaleyfi fyrir hlöðu frá ON | |
OR sækir um leyfi til að setja upp hlöður, hraðhleðslustöð innan lóðar Skeljungs við Óseyrarbraut. Samstarfssamningur liggur fyrir á milli Skeljungs og Orku náttúrunnar um uppsetninguna og rekstur. Afgreiðsla: Erindið samþykkt og verður gefið út framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningunni. | | |
|
2. 1506070 - Þorlákshöfn: Skipulagsmál á hafnarsvæði | |
Aðalskipulagsbreyting var gerð á hafnarsvæðinu og deiliskipulagsbreyting í samræmi við aðalskipulagsbreytinguna. Umsagnir hafa komið frá lögboðnum aðilum. Hönnuðir skipulagsins, Eva Dís Þórðardóttir frá Verkfræðistofunni Eflu kynntu stöðuna á gerð aðalskipulagsins og deiliskipulagsins. Afgreiðsla: Samþykkt að skipulagsgögnin verði undirbúin til að fara í lögboðinn feril. | | |
|
3. 1706001 - Skipulag: Aðalskipulag. Ósk um breytingu Aðalskipulags Ölfuss 2010-2022 í landi Árbæjar IV og heimild til deiliskipulagsgerðar á grundvelli hennar | |
Skipulagslýsing hefur verið í kynningu fyrir aðal- og deiliskipulag á landi úr jörðinni Árbær IV. Nú til afgreiðslu í lögboðinn feril aðalskipulagsbreyting á notkun á landi, í íbúðabyggð, og deiliskipulag um nýtingu á svæðinu. Afgreiðsla: Samþykkt að aðalskipulagsbreytingin fari í lögboðinn feril. Deiliskipulagið fari í lögboðin feril þegar búið er að gera grein fyrir fráveitumálum í samræmi við heilbrigðisreglugerðir. | | |
|
4. 1711022 - Orka náttúrunnar, deiliskipulag jarðhitagarður | |
On kynnir deiliskipulag fyrir jarðhitagarð. Hönnuðir skipulagsins, Finnur Kristinsson frá Landslag,Ólöf Andrésdóttir frá Orku náttúrunnar og Heiða Aðalsteinsdóttir frá Orkuveitu Reykjavíkur komu á fundinn og kynntu deiliskipulagstillöguna. Afgreiðsla: Samþykkt að skipulagslýsing verði unnin á grunni tillögunnar og fari í lögboðinn kynningarferil. Samþykkt að opinn fundur verði í janúar/febrúar 2018, til kynningar fyrir íbúa og hagsmunaaðila. | | |
|
5. 1712012 - Hjarðarból deiliskipulag | |
Fyrir liggur deiliskipulag þar sem búið er að setja byggingarreiti um öll húsin heima á hlaði Hjarðarbóls, fjórir byggingarreitir. Bætt við nýjum byggingarreit nr. fimm þar sem byggja má allt að 6 smáhýsi, í heild allt að 600 m2. Reiturinn er 1650 m2 og þá nýtingarhlutfall lóðarinnar 0.364. Afgreiðsla: Samþykkt að deiliskipulagið fari í lögboðinn kynningar- og auglýsingarferil | | |
|
6. 1711016 - Umsókn um lóð, Hrímgrund, Ísleifsbúð 22-28 | |
Hrímgrund ehf sækir um raðhúsalóðina Ísleifsbúð 22-28. Afgreiðsla: Samþykkt að úthluta Hrímgrund ehf lóðinni að uppfylltum skilyrðum sem fram koma í vinnureglum um úthlutun lóða. | | |
|
7. 1711020 - Umsókn um lóðir Trésmiðja Heimis ehf | |
Trésmiðja Heimis ehf sækir um Klængsbúð 22-24, 26-28, 30-32. Með umsókninni fylgir rökstuðningur fyrir umsókninni. Þar kemur fram ósk um breytingar á vinnureglum við úthlutun lóða þannig að fyrirtæki geti verið með lóðir lengur en 8 mánuði án þess að hefja framkvæmdir. Hagræðing er fyrir fyrirtæki að vera með lóðir hlið við hlið s..s vegna hönnunar á húsunum og vegna vinnuhagræðingar. Afgreiðsla: Umræða var um erindið og eru ábendingarnar góðar inn í umræðuna um vinnureglur við úthlutun lóða. Samþykkt að úthluta Trésmiðju Heimis ehf lóðunum Klængsbúð 22-24, 26-28 og 30-32 í samræmi við gildandi vinnureglur um úthlutun lóða. | | |
|
8. 1712011 - íbúagáttarmál | |
Sótt er um Klængsbúð 1-3 og til vara um Klængsbúð 30-32. Afgreiðsla: Samþykkt að úthluta Klængsbúð 1-3 til Ingvars Páls Jónssonar að uppfylltum skilyrðum sem fram koma í vinnureglum um úthlutun lóða. | | |
|
9. 1709016 - Umsókn um lóð Gissurarbúð 4, Hrímgrund ehf | |
Grenndarkynning fór fram um að breyta einbýlishúsalóðunum Gissurarbúð 2 og nr. 4 í eina raðhúsalóð. Umsagnir komu frá íbúum við götuna. Afgreiðsla: Málið rætt. | | |
|
10. 1709015 - Umsókn um lóð. Gissurarbúð 2, Hrímgrund ehf | |
Grenndarkynning fór fram um að breyta einbýlishúsalóðunum Gissurarbúð 2 og nr. 4 í eina raðhúsalóð. Umsagnir komu frá íbúum við götuna. Afgreiðsla: Málið rætt. | | |
|
11. 1711025 - Umsókn um lóð Klængsbúð 21-23 | |
Emil Pétursson sækir um parhúsalóðina Klængsbúð 21-23. Þór Emilson vék af fundi. Afgreiðsla: Samþykkt að úthluta Klængsbúð 21-23 til Emils Péturssonar að uppfylltum skilyrðum sem fram koma í vinnureglum um úthlutun lóða. | | |
|
12. 1712004 - Skipulagsmál: Aðalskipulag. Vinnslutillaga vegna breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 | |
Kynnt tillaga á breytingu á aðalskipulagi Kópavogs. Kópavogsgöng felld úr skipulagi og nýtt svæði fyrir verslun og þjónustu við Dalveg. Afgreiðsla: Ekki er gerð athugasemd við vinnslutillöguna, breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. | | |
|
13. 1712003 - Skipulagsmál: Svæðisskipulag. Auglýsing um tillögu að beytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 | |
Kynning á tillögu er varðar samgöngu- og þróunarása fyrir hágæðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, Borgarlínu. Afgreiðsla: Ekki er gerð athugasemd við tillöguna um breytingarnar. | | |
|
14. 1705009 - Unubakki 4, gisting | |
Fyrir er gisting í norðurhluta 2. hæðar. Í suðurhlutanum er bætt við fimm herbergjum. Hvor einingin er sér brunahólf með stigagangi á milli. Þar er starfsmannaaðstaða. Við stækkunina fellur gistiheimilið í b lið 4. gr. reglugerðar um veitinga- og gististaði nr.1277/2016, sem er leiga á fleirum en 6 herbergjum og fyrir fleiri en 10 einstaklinga. Afgreiðsla: Tillaga að breytingu á suðurhluta Unubakka 4, að gera þar fimm gisti herbergi til viðbótar við gisti herbergin í noðurhlutanum. Teikning af breytingunum verður afgreidd þegar umsagnir lögboðinni aðila liggja fyrir | | |
|
15. 1711030 - Selvogsbraut 41, byggja við og ofan á húsið | |
Erindi frá Trésmíðar Sæmundar ehf um hvort byggja megi ofan á Selvogsbraut 41. Einnig að byggja við til austurs fyrir stækkun á veitingarstað og fyrir stigahús. Afgreiðsla: Erindið rætt. Kallað eftir að kynntar verði teikningar af breytingunum sem hægt er að nota í grenndarkynningu. | | |
|
16. 1711044 - Breytingar, Sögusteinn | |
Erindi er um að breyta íbúðarhúsinu og bílgeymslunni vega útleigu á húsnæðinu. Einnig fyrirspurn um hvort byggja megi meira á lóðinni, fleiri hús. Í aðalskipulagi er reiturinn merktur fyrir íbúðahúsabyggð. Erindi frá Verkfræðistofunni Eflu fyrir hönd Borg Ráðgjöf og þjónusta ehf (kt. 590101- 2220) um að skipulagsnefnd taki fyrir á næsta fundi ósk um uppskiptingu á lóðinni Sögusteinn (landnr.172269). Í dag er lóðin 3 hektarar en hér með er óskað eftir því að skipta henni upp í þrjár lóðir sem verða um 1 hektari hver, lóð 1, 2 og 4 (sjá meðfylgjandi mynd sem er unnin eftir deiliskipulagstillögu sem var gerð af Verkfræðiskrifstofu Suðurlands ) Einnig er óskað eftir því að á lóð 1 verður byggingareitur þar sem heimilt er að byggja allt að þrjú 250 m² íbúðarhús með bílskúr og innan byggingareita á lóðum 2 og 4 verður heimilt að byggja allt að eitt 300 m² íbúðarhús ásamt bílskúr á hvorri lóð. Einnig sækja eigendur að núverandi íbúðarhúsi Sögustein á lóð 1 um leyfi fyrir breytingu á íbúðarhúsi yfir í gistiheimili. Samliða þessum aðgerðum mun eigandi hafa samband við eigendur aðliggjandi lóða þar sem í sameiningu er fundin heildarlaus vegna fráveitu, hitaveitu og vatnsveitu á svæðinu. Afgreiðsla: Erindið rætt og afgreiðslu frestað.
| | |
|
17. 1712013 - Hlíðarás, Hraunsígur 1 | |
Hraunstígur 1a, Hlíðarás, er sótt um leyfi til að breyta notkun á bílgeymslu. Fyrirhugað er að gera þar herbergi og snyrtingu, eldhús og setustofu. Eftir breytingu væri rýmið notað til útleigu. Afgreiðsla: Erindið um að breyta bílgeysmlunni þannig að þar komi til viðbótar við íbúðahúsið þrjú herbergi, setustofa með eldhúskrók, snyrting með baði og snyrting með kóseti. Ekki er heimilt að leigja herbergi í heimagistingu lengur en 30 daga í senn. Heimilt er að vera með heimagistingu í íbúðarhúsi allt að 90 daga á ári. Lóðin er fyrir íbúðahús og uppfyllir skilyrði um heimagistingu. Afgreiðsla: Leggja skal fram teikningar af breytingunum sem fer til umsagnar hjá lögboðnum aðilum. Einnig verði erindið grenndarkynnt. | | |
|
18. 1712020 - Framkvæmdaleyfi, Gleipnir verktakar ehf, vinnubúðir | |
Gleipnir verktakar ehf sækja um tímabundið leyfi fyrir vinnubúðir á lóð Rarik, spennistöð vestan við bæinn, Básahraun 60. Gleipnir verktaka ehf er með lagna- og stígaframkvæmd frá Þorlákshöfn að iðnaðarsvæði vestan við bæinn. Afgreiðsla: Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi, stöðuleyfi, fyrir vinnubúðum á lóð Rarik, Básahraun 60 í 6 mánuði frá desember 2017 til 1. júní 2018. | | |
|
19. 1712021 - Tálkni ehf, matskyld framkvæmd | |
Erindi frá Skipulagsstofnun um 5000 tonna fiskeldi Tálkna ehf sé háð mati á umhverfisáhrifum. Kærufrestur er til 13. janúar 2018.Reiturinn U11, sem fyrirhuguð starfsemi á að vera innan, á eftir að gera breytingu á aðalskipulagi og tilgreina hann sem iðnaðarsvæði. Undirbúningur við aðalskipulagsbreytinguna er í vinnslu. Samhliða aðalskipulagsbreytingunni verði auglýst deiliskipulag. Skipulagslýsing fyrir breytinguna fer í lögboðinn feril. Við ákvörðun um matskylda framkvæmd er m.a. tekið mið af stærð og umfangi framkvæmdar, úrgangsmyndun, mengun og ónæði, samlegðaráhrifum með öðrum framkvæmdum og nýtingu náttúruauðlinda, sbr. 1. tl. 2. viðauka laga nr. 106/2000. Einnig skal við mat á því hvort tilkynningarskyld framkvæmd skuli háð umhverfisáhrifum taka tillit til staðsetningar framkvæmdar með hliðsjón af því vhersu viðkvæm þau svæði eru sem líklegt er að framkvæmd hafi áhrif ám.a. með tilliti til landnotkunar sem fyrir er og álagsþol náttúrunnar sbr. 2.tl. 2. viðuaka laga nr. 106/2000. Fyrirhugað fiskeldi er talsvert umfangsmikið; um er að ræða framkvæmd sem er margfalt stærri en viðmið þau sem koma fram í tl. 1.11 í 1. viðauka laga um mat á umhverfsiáhrifum. Skv. þeim ákvæðum er fiskeldi sem er 200 tonn eða meira tilkynningarskylt til ákvörðunar um matssyldu. Grunnvatnsvinnsla umfram 300 l/sek er matsskyld. Tálkni fyrirhugar að nýta 4.590 l/sek, ferskvatn og salts grunnvatns. Vegna staðsetningar framkvæmdanna og álagsþols náttúrunnar á strandsvæði telur Skipulagsstofnun að jafnmikið eldi og fyrirhugað er á vegum Tálkna ehf kalli á nánara mat og greiningu m.a. með tilliti til áhrifa frárennslis sbr. ábendingar í umsögn Hafrannsóknarstofnunar um óvissu um magn næringarefna og úrgangs sem kunni að koma frá starfseminni og þeirra samlegðaráhrifa með öðrum seiða- og fiskeldisstöðvum á nærsvæði stöðvarinnar. Afgreiðsla: Erindi frá Skipulagsstofnun rætt. | | |
|
20. 1708003 - Bílastæði stórir bílar | |
Lagt er til að planið við Hafnarskeið 6, Hafnarskeið 4, sem er innan lóðar sveitarfélagsins, verði auglýst sem plan þar sem leggja skal stórum bifreiðum á. Lögreglusamþykktin heimilar ekki að vörubifreiðar sem eru 7.5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira og fólkflutningarbifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri, sé lagt á götum eða almenningsbifreiðastæðum nema að þau séu til þess ætluð. Bannið gildir einnig um hvers konar vinnuvélar og dráttarvélar án tillits til þunga þeirra. Lögreglustjóri getur einnig bannað stöðu eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagn, hjólhýsa, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla, á götum og almennum bifreiðastæðum sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu. Þetta gildir einnig um smærri sem stærri hluti svo sem gáma, kerrur, bíla, bílhluta, báta, skipsskrokka og annað þess háttar. Afgreiðsla: Samþykkt að fela umhverfisstjóra að undirbúa lóðina Hafnarskeið 4 fyrir bílaplan þar sem hægt er að leggja stærri en 7500 kg bifreiðum. Einnig að umhverfisstjóri kynni ákvörðunina að óheimilt sé, samkvæmt lögreglusamþykktinni,III. kafla, gr. 22 | | |
|
21. 1711043 - Lóðarstækkun Faxabraut 12 | |
Fyrirspurn um stækkun á lóðinni Faxabraut 12, Arnar Jónsson. Stækkunin næmi 35 m til norðurs og 20 m til austurs. Fyrirhugað er að stækka húsið fyrir hnakkageymslu, salerni, móttöku fyrir nemendur og gesti Perluhesta. Fyrir liggur deiliskipulag fyrir hesthúsahverfið. Norðan við Faxabraut 12 er í skipulagi reiðstígur og einnig reiðstígur austan við húsið. Á milli Faxabrautar 12 og 10 er í skipulagi gert ráð fyrir hringgerði. Afgreiðsla: Erindið rætt, afgreiðslu frestað. Kynna skal erindið fyrir hagsmunaaðilum. | | |
|