| |
1. 1801041 - íbúagáttarmál | |
B. Gíslason ehf sækir um parhúsalóðina Klængsbúð 17-19. Afgreiðsla: Umsækjnandi hefur ekki sótt um lóð í nokkur ár. Samþykkt að úthluta B.Gíslasyni ehf Klængsbúð 17-19 | | |
|
2. 1802040 - Umsókn um lóð Klængsbúð 17-19 | |
Hrímgrund ehf sækir um Klængsbúð 17-19.
Umsækjandi er með þrjár einbýlishúsalóðir að byggja á og eina raðhúsalóð.Fyrir liggur önnur umsókn um lóðina.
Afgreiðsla: Erindinu hafnað. | | |
|
3. 1802037 - byggingarleyfi, rarik spennistöð Laxabraut 9 | |
Rarik tilkynnir um spennistöð að Laxabraut 9 þar sem Laxar ehf eru með starfsemi.Í skipulaginu er gert ráð fyrir þessari spennistöð. Afgreisla: Erindið samþykkt. | | |
|
4. 1802041 - Tilkynning um spennistöð á Víkursandi 1a | Rarik tilkynnir um spennistöð að Víkursandi 1a. Skipulagið sýnir lóð fyrir spennistöð.
Afgreiðsla: Erindið samþykkt. | | |
|
5. 1801067 - Aðalskipulagsbreyting Mosfellsbær | |
Skipulagsáætlun fyrir aðalskipulagsbreytingu í Mosfellsbæ kveður á um að breyta skipulagsákvæðum stakra íbúðahúsa á óbyggðum svæðum og landbúnaðarsvæðum.
Afgreiðsla: Ekki gerðar athugasemdir við skipulagsáætlunina. | | |
|
6. 1801049 - Skipulagsmál: Aðalskipulag. Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, miðborgin | |
Reykjavíkurborg kynnir breytingu á aðalskipulagi er tekur til miðborgarinnar, markmiðar um göngugötur. Verið er að endurbæta núgildandi markmið í aðalskipulagi.
Afgreiðsla: Ekki gerð athugasemd við kynnta breytingu á aðalskipulaginu. | | |
|
7. 1801068 - Umsókn um lóð, Rafspenna ehf | |
Rafspenna ehf óskar eftir viðræðum um lóð fyrir starfsemi sína.
Málið kynnt.
Afgreiðsla: Umsækjanda boðið að koma til viðræðna um lóðir sem koma til greina fyrir starfsemi fyrirtækisins. | | |
|
8. 1712028 - Lóðarumsókn Ísleifsbúð 11-19 | |
Fyrirspurn um staðsetningu á húsi innan byggingarreits. Í greinargerð með skipulagi, kafili 2.2, segir að byggingarlína sé bundinn og að meira eða jafnt og 70% skal liggja að bundinni byggingarlínu. Húsið sem kynnt er er stallað og fellur ekki með byggingarlínu að götu. Afgreiðsla: Samþykkt að heimila stöllun á húsum enda séu þau innan byggingarreits. | | |
|
9. 1802049 - Aðalskipulagsbreyting Litla og Stóra Sórbæ | |
Tálkni ehf óskar eftir aðalskipulagsbreytingu á landi Litla- og Stóra Saurbæjar innan Ölfuss, sem er í eigu fyrirtækisins, neðan Þorlákshafnarvegar. Svæðið er um 4 ha og innan svæðisins er fyrirhugað að vera með ferðaþjónustutengda starfsemi. Afgreiðsla: Málið kynnt. Fulltrúar Tálkna ehf verða boðaðir á fund með SBU og bæjarstjórn til að ræða innkomið erindi. | | |
|
10. 1802048 - Þorkelsgerði II, fastanúmer 221-2045 | |
Erindi frá eiganda Þorkelsgerðis II um að heimilt verði að vera með gistiheimili í íbúðarhúsinu sem er á landinu. Landið liggur neðan Strandarkirkjuvegar og liggur niður að sjó. Á árinu 2010 fóru fram landskipti á jörðinni Þorkelsgerði II og fékk Friðrik Pétursson þennan hluta úr jörðinni, nýja lóð Þorkelsgerði II, lóð G landnúmer 218950.
Þorkelsgerði II hefur á undanförnum árum verið nýtt til útleigu fyrir ferðamenn. Eftir að húsleigulögum var breytt, áramótin 2016/2017 er sótt um rekstrarleyfi til sýslumannsins á Suðurlandi. Með vísun til ofangreinds óska ég eftir að skilreiningu á lóðinni Þorkelsgerði II, lóð G landnúmer 218950 verði breytt í þjónustulóð. Málið kynnt. Erindið verður tekið upp með skipulagsráðgjöfum aðalskipulagsins er varðar uppbyggingu gistiheimila á landi sem skipt hefur verið út úr jörðum. | | |
|
11. 1802035 - Framkvæmdaleyfi efnistaka í grjótnámu við Gamla veg | |
Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir að sprengja fyrir 20.000m3 efni til að mala niður og nota við plön á hafnarsvæðinu. Framkvæmdir undir 50.000 m3 og undir B flokki, sem eru framkvæmdir yfir 50.000 m3, fellur í C flokk þar sem sveitarfélagið metur hvort framkvæmdin sé háð umhverfismati. Í aðalskipulagi er merkt þarna náma, E12 og svæðið skilgreint sem 5 ha. Búið er að vinna á um 2.9 ha svæði innan námusvæðisins. Afgreiðsla: Erindið fellur að flokki C, sem er efnistaka undir 50.000m3 og náman er skilgreind í aðalskipulagi. Ekki er verið að fara inn á svæði sem er á náttúruminjaskrá. Leyfi veitt fyrir 20.000m3 efnistöku til notkunar á hafnarsvæðinu. | | |
|
12. 1802034 - Framkvæmdaleyfi efnistaka í Skötubót | |
Sveitarfélagið Ölfus sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 20.000 m3 sandtöku í Skötubót til að nota í fyllingu á plönum á hafnarsvæðinu. Framkvæmdir í C flokki þar sem efnistaka er undir 50.000 m3 og undir viðmiðunarmörkum í flokki B, sem eru framkvæmdir yfir 50.000 m3, sem skal tilkynna til viðkomandi sveitarfélags sem tekur ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Í aðalskipulagi fyrir Sveitarfélagið Ölfus, 2010-2022 er sýnt að á skipulagstímanum er gert ráð fyrir stækkun hafnarinnar til austurs. Fyrirhugað efnistökusvæði er innan þessa svæðis sem aðalskipulagið fjallar um. Afgreiðsla: Á grunni aðalskipulags 2010-2022, þar sem gert er ráð fyrir stækkun hafnarinnar til austurs er veitt heimild til efnistöku á 20.000 m3 af sandi til uppbyggingar á hafnarsvæðinu, er framkvæmdin samþykkt. | | |
|
13. 1801051 - Silfurberg fyrirspurn um gistiheimnili | |
Sótt er um að breyta húsinu Silfurberg í gistiheimili. Húsið stendur á 700 m2 lóð, stofnað úr landinu Kvíarhóll. Sótt er um aðalskipulagsbreytingu, breyta úr íbúðahúsalóð í þjónustulóð. Afgreiðsla: Málið kynnt. Erindið verður tekið upp með skipulagsráðgjöfum aðalskipulagsins er varðar uppbyggingu gistiheimila á landi sem skipt hefur verið út úr jörðum. | | |
|
14. 1802028 - Deiliskipulag Gljúfurárholt 2 | |
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir annan áfanga í Gljúfurárholti. Tillagan gengur lengra heldur en aðalskipulag segir til um uppbyggingu á svæðinu.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Landeigendum boðið til fundar með SBU og bæjarstjórn til að ræða innsent erindi um uppbyggingu á öðrum áfanga íbúðabyggðar úr landi Gljúfurárholts. | | |
|
15. 1802045 - Deiliskipulag Gljúfurárholt við bæinn Gljúfurárholt | |
Fyrirspurn er um deiliskipulag á landi við bæinn Gljúfurárholts. Fyrirhugað er að vera með ferðaþjónustutengda starfsemi innan svæðisins.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Landeiganda boðið að kynna erindið frekar á fundi með SBU og bæjarstjórn. | | |
|
16. 1802044 - Breyting á greinargerð með aðalskipulagi | |
Óskað er eftir að tafla um heimildir til bygginga inna landbúnaðarsvæðis verði rýmkuð.
Afgreiðsla: Málið kynnt. Erindið verður tekið upp með SBU, bæjarstjórn og skipulagsráðgjöfum sveitarfélagsins um heimildir innan aðalskipulagsins. | | |
|
17. 1802043 - Deiliskipulag fyrir Gljúfurárholt lóð 11 | |
Sótt um deiliskipulag fyrir land 11 sem hefur nr. 24 í Þjóðskrá sem er 1.015 ha. Þar komi íbúðarhús, skemma og hesthús. Í sama skipulagi er skipulag fyrir land merkt nr. 23 hjá Þjóskrá. Í aðalskipulagi er þetta svæði hluti af F11, frístundabyggð. Landið er 4.559 ha. Þar kynnt skipulag fyrir tvö íbúaðrhús, skemmu og þrjú frístundahús. Afgreiðsla: Málið kynnt. SBU hefur óskað eftir við landeigendur innan F11 og þá einnig fyrir lóðir nr. 23 og 24 að allt svæðið verði deiliskipulagt saman og þá horft til vegtenginga inn á svæðið. | | |
|
18. 1802042 - Deiliskipulag breyting á F11 | |
Í aðalskipulagi fyrir land Gljúfurárholts er svæði merkt F11 fyrir frístundabyggð. Sótt er um að því landi verði breytt í landbúnaðarland. Afgreiðsla: SBU hefur óskað eftir því við landeigendur að allt landið verði deiliskipulagt í einni heild. | | |
|