| |
1. 1805042 - Hreinlætismál: Samstarf um urðunarstað á Nessandi. | |
Urðun á Nessandi. Kynning á urðunarstað á Nessandi. Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir móttöku- og flokkunarstöð á Nessandi, U1. Sorpsamlag Suðurlands hefur sent inn kynningargögn til að fjalla um urðun á óvirkum úrgangi innan reitsins U1. Afgreiðsla: Málið kynnt. Mikil urðun samræmist ekki staðfestu aðalskipulagi en aðalskipulagið gerir ráð fyrir móttöku- og flokkunarstöð fyrir úrgang og urðun á því sem ekki verði endurnýtt eða flutt burtu. Nefndin leggur því áherslu á að samhliða kynningu á þessari hugmynd verði aðrir kostir skoðaðir. Við skoðun á erindinu og e.t.v vinnslu á skipulagslýsingu verði þess gætt að gagnsæi verði í kynningu fyrir íbúa og hagsmunaaðila.
| | |
|
2. 1808009 - Skipulagslýsing, Skyggnir úr Kirkjuferjuhjáleigu | |
Fyrirhugað er að byggja á um 10.7 ha landi um 150 m2 frístundahús, um 40 m2 gestahús og um 300 m2 hesthús. Skipulagið er í samræmi við aðalskipulag á landbúnaðarsvæði. Afgreiðsla: Málið kynnt. Fyrirspunin um að hefja gerð deiliskipulags á reitnum samþykkt. Farið verði í lögboðinn feril. | | |
|
3. 1706010 - Deiliskipulag norðan Norðurbyggðar | |
Kynning á staðfestu deiliskipulagi.
Afgreiðsla: Rætt um innra skipulag svæðisins. Þörf er fyrir byggingar með minni íbúðum og þá rað- og parhúsum. Einnig skoðað hvort taka eigi út hluta af einbýlishúsalóðunum og setja inn par- og raðhúsalóðir. Fyrir næsta fund komi inn breytt tillaga þar sem búið er að skoða stærð lóða og tegund íbúða þannig að hægt verði að koma inn húsum með minni íbúðum. | | |
|
4. 1808001 - Framkvæmdaleyfi vega og lagna innan jarðhitagarðs | |
Inn á fundinn kom Heiða Aðalsteinsdóttir frá ON að fjalla um erindið. Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir rafmagn, heitt- og kalt vatn að fyrstu lóðinni innan Jarðhitagarðsins við Hellisheiðavirkjun. Heitt- og kalt vatn er tekið frá lögnum sem liggja rétt við lóðina en rafmagn frá stöðvarhúsi. Á lóðina kemur verksmiðja Algaennovation. Afgreiðsla. Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir tengingu við hitavatnslögn og kaldavatnslög sem liggur í vegstæði við lóðina og einnig fyrir 11 kW rafstreng frá stöðvarhúsi Hellisheiðavirkjunar að lóðinni. | | |
|
5. 1808006 - Framkvæmdaleyfi, borholur á plnai 3, Hellisheiðavirkjun | |
Heiða Aðalsteinsdóttir frá ON sat fundinn undir þessum lið og skýrði út umsóknina um framkvæmdaleyfið.Orka náttúrunnar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir tveimur borholum á borplani 3 sem liggur á svæði sem nefnt er á milli hrauns og hlíðar. Þær borholur sem á að bora liggja það utarlega á borplaninu að mikil röskun verður á hrauninu utan við planið. Sótt er um að færa borsvæðið á raskað svæði rétt hjá sem var notað sem lagersvæði þegar Hellisheiðavirkjun var í uppbyggingu. Afgreiðsla: Erindið kynnt. Tekið er jákvætt í að skoðaður verði lögboðinn ferill við afgreiðslu á óverulegri breytingu á deiliskipulaginu. | | |
|
6. 1706001 - Árbær IV Skipulag: Aðalskipulag. Ósk um breytingu Aðalskipulags Ölfuss 2010-2022 í landi Árbæjar IV og heimild til deiliskipulagsgerðar á grundvelli hennar | |
Erindið hefur verið auglýst. Inn komu athugasemdir sem brugðist var við og uppdráttur lagfærður. Landeigandi staðfestir að hann sjái um nægt neysluvatn og nægt slökkvivatn. Heitt vatn kemur frá hitaveitu Árbæjarhverfis. Lóðarhafi sér um uppbyggingu vega og fráveitu. Afgreiðsla: Aðal- og deiliskipulagstilögur samþykktar eftir lagfæringa vegna ábendinga sem inn komu. | | |
|
7. 1804038 - Skipulagsstofnun um matsskyldu Laxa | |
Fyrirspurn frá Skipulagsstofnun um matsskyldu fyrir 100 tonna seiðaeldi að Bakka. Afgreiðsla: Erindið kynnt. Fyrirspurnin um seiðaeldi að 100 tonna framleiðslu er ekki matskyld að mati skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar. | | |
|
8. 1808008 - Laxar Fiskeldi ehf. Umsögn um 2500 tonna framleiðslu | |
Skipulagsstofnun óskar eftir hvort 2500 tonna laxeldi Laxa fiskeldi ehf að Laxabraut 9 sé matsskyld framkvæmd. Afgreiðsla: Málið kynnt. Það er mat skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar að 2500 tonna laxeldi í kerjum á landi við Laxabraut 9 sé ekki matskyld framkvæmd. | | |
|
9. 1808010 - Lóðarúthlutun, staða | |
Kynning á stöðu mála, úthlutun lóða og stöðu framkvæmda. Afgreiðsla: Málið kynnt. | | |
|
10. 1808011 - Aðalskipulag, lýsing aðalskipulagsbreytinga | |
Sett fram sameiginleg skipulags- og matslýsing fyrir nokkrar breytingar á aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022. Tilgangur með gerð skipulagslýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferli á fyrstu stigum og auka gagnsæi. Tekin eru fyrir nokkur aðalskipulagsmál sem fara þarf sem fyrst í. | | |
|
11. 1808014 - Byggingarleyfi, Pálsbúð 6 | |
Byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Pálsbúð 6 er þegar afgreidd af byggingarfulltrúa, enda uppfyllir erindið deiliskipulagi. | | |
|
12. 1808013 - Byggingarleyfi,Finnsbúð 14 | |
Byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Finnsbúð 14 | | |
|
13. 1808016 - Hvammsvegur, vegtengingar | |
Vegagerðin tók fyrir erindi um vegtengingar af Hvammvegi inn á skika úr Gljúfurárholti til austurs og vesturs. Vegtengingar eru inn á land Gljúfurárholt 23 og 24, ein tengin. Til vesturs inn á Gljúfurárholt 2, svæði til skipulags fyrir íbúðabyggð. Inn á land Gljúfurárholt 10 sem er að tengivegi er tengir land 13, 10 og 14 saman. Inn á Gljúfurárholt 2, íbúðabyggð til vestur. Inn á land Gljúfurárholt 8 sem er með tengiveg að landi nr. 9 Afgreiðsla: Samþykkt að heimila deiliskipulagsgerð í samræmi við samþykktar vegtengingar inn á svæðið.
| | |
|
14. 1805032 - Lóðarumsókn Unubakki 8 | |
Gunnar Magnússon, kt. 060661-3409, Kvíslartungu 58 Mosfellsbæ sækir um lóðina Unubakka 8. Í skipulagi er gert ráð fyrir að farið sé að lóðinni norðan við Unubakka 4. Hluti af lóðinni er nú malbikað plan sem Skeljungur er með og innan þess er hraðhleðslustöð. Afgreiðsla: Málið kynnt. Umsækjanda boðið að koma til viðræðna um iðnaðarlóðir í Þorlákshöfn og kynna fyrirhugaða uppbyggingu. | | |
|