| |
1. 1902015 - Fjármál. Ársreikningur Sveitarfélagins Ölfuss 2018 | Á fundinn voru mættar þær Sigrún Guðmundsdóttir endurskoðandi sveitarfélagsins og Hrund Hauksdóttir frá BDO-endurskoðun hf. Fóru þær yfir endurskoðunaráætlun og annað er tengist endurskoðun reikninga sveitarfélagsins fyrir árið 2018.
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar | | |
|
2. 1901005 - Starfshópur um endurskoðun kosningalaga. | Lagt fram bréf "Starfshóps um endurskoðun kosningalaga" dags. 19. desember 2018.
Lagt fram til kynningar. | | |
|
3. 1902013 - Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga. | Lagt fram bréf Íbúðalánasjóðs varðandi húsnæðisáætlanir sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar. | | |
|
4. 1901022 - Breytingar á afsláttarkjörum til viðskiptavina í heitu og köldu vatni. | Lagt fram bréf Veitna dags. 10. janúar 2019 varðandi breytingar á afsláttarkjörum til stórnotenda sem taka eiga gildi þann 1. janúar 2020.
Lagt fram til kynningar. | | |
|
5. 1901033 - Beiðni um fjárframlag fyrir rekstrarárið 2019. | Fyrir bæjarráði lá styrkbeiðni frá Kvennaráðgjöfinni upp á 200.000. kr. Eftirfarandi tillaga lögð fram:
"Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar. Bæjarráð minnir á að styrkbeiðnir sem þessar verða að berast sveitarfélaginu áður en fjárhagsáætlun ársins er samþykkt".
Samþykkt samhljóða. | | |
|
6. 1902014 - Afsetning á sorpi. | Fyrir bæjarráði lá erindi frá Gunnari Bragasyni forstjóra Gámaþjónustunnar hf. þar sem fram kemur að Sorpeyðingarstöð Suðurnesja (Kalka) sem tekið hefur við óflokkuðu sorpi til förgunar frá sveitarfélaginu á seinustu vikum hefur ekki tök á að veita slíka þjónustu áfram.
Eftirfarandi bókun lögð fram:
"Bæjarráð lýsir yfir þungum áhyggjum af sorpmálum á Suðurlandi. Fyrir liggur að sveitarfélög á Suðurlandi eiga í samstarfi um afsetningu sorps í gegnum byggðasamlagið Sorpstöð Suðurlands (SOS). Sá farvegur er án nokkurs vafa heppilegastur til að tryggja samræmdar leiðir við sorpförgun þannig að umhverfissjónarmið og hagkvæmni heildarinnar sé gætt í hvívetna. Bæjarráð lýsir sig enn fremur áfram viljugt til þátttöku í verkefnum sem verða kunnu til þess að markmiðum SOS um umhverfisvernd og hagkvæmni í meðhöndlun sorps náist".
Samþykkt samhljóða. | | |
|
7. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. | Fyrir bæjarráði lágu eftirfarandi bréf frá nefndarsviði Alþingis:
Frá nefndarsviði Alþingis - 306. mál Frá nefndarsviði Alþingis - 274. mál Frá nefndarsviði Alþingis - 495. mál Frá nefndarsviði Alþingis - 509. mál
Til kynningar. Þá óskar bæjarráð eftir afstöðu öldungaráðs varðandi fyrirhugaðar breytingar á lögum um málefni aldraðra. | | |
|
8. 1803036 - Persónuvernd Ráðgjafavinna. | Fyrir bæjarráði lá greinagerð persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins og þjónustusamningur þar að lútandi.
Fyrir liggur að fyrirtækið Dattaca labs. hefur þjónustað sveitarfélagið hvað persónuvernd varðar síðasta árið og er nú komið að því að gera samning þar að lútandi til lengri tíma. Með samningnum felur sveitarfélagið Dattaca labs. að taka að sér hlutverk persónuverndarfulltrúa fyrir hönd þess í samræmi við þar að lútandi lög.
Bæjarráð þakkar kynninguna og samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn. | | |
|
9. 1902007 - Saga Ljósmæðrafélags Íslands | Fyrir bæjarráði lá erindi frá Ljósmæðrafélagi Íslands þar sem óskað var eftir stuðningi við útgáfu sögu félagsins ásamt ljósmæðratali.
"Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar. Þá minnir bæjarráð á að allar styrkbeiðnir þurfa að berast sveitarfélaginu áður en fjárhagsáætlun ársins er lokað".
Samþykkt samhljóða. | | |
|
10. 1901025 - Jafnlaunavottun Sveitarfélagsins Ölfuss. | Fyrir bæjarráði lá erindi um jafnlaunavottun ásamt verkáætlun vegna vinnu þar að lútandi frá Ráður 2 ehf. Markmið verkefnisins er að þróa jafnlaunakerfi fyrir Sveitarfélagið Ölfus sem uppfyllir lagalegar kröfur fyrir jafnlaunavottun. Jafnlaunakerfi gerir stjórnendum kleift að koma á og viðhalda launajafnrétti á vinnustaðnum. Innleiðing jafnlaunakerfis er liður í því að tryggja gæði í starfsemi, auka vægi faglegrar mannauðsstjórnunar, efla starfsánægju og hollustu starfsfólks, uppfylla samfélagslega ábyrgð og stuðla áfram að góðum stjórnunarháttum. Áætlaður kostnaður sveitarfélagsins vegna þessarar vinnu er 3.949.000 kr.
"Bæjarráð þakkar erindið og samþykkir það samhljóða fyrir sitt leyti. Þá samþykkir bæjarráð samhljóða að Guðni Pétursson og Hafdís Sigurðardóttir verði skipuð í verkefnisstjórn um jafnlaunavottun af hálfu sveitarfélagsins. | | |
|
11. 1812011 - Dómsmál vegna lóðarúthlutunar Landstólpi ehf. | Fyrir bæjarráði lá úrskurður Landsréttar í máli Landstólpa gegn sveitarfélaginu. Málið varðar kröfu Landstólpa um hann eigi rétt á að fá lóð nr. 16 við Hafnarskeið í Ölfusi úthlutað og hafði fyrirtækið kært úrskurð Héraðsdóms sem áður hafði dæmt sveitarfélaginu í vil. Landstólpi fór með kærunni fram á að úrskurður Héraðsdóms Suðurlands yrði felldur úr gildi.
Niðurstaða Landsréttar var sú að dæma sveitarfélaginu í vil og staðfesta úrskurð Héraðsdóms Suðurlands í málinu. | | |
|
12. 1902012 - Nordjobb á Íslandi. | Fyrir bæjarráði lá erindi frá Nordjobb vegna sumarstarfa 2019 þar sem þess var farið á leit að sveitarfélagið myndi ráða tvö norræn ungmenni til starfa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna erindið fyrir þeim sem fara með sumarráðningar. | | |
|
13. 1901035 - Eyjahraun 8 | Fyrir bæjarráði lágu tilboð í fasteignina Eyjahraun 8 sem sveitarfélagið auglýsti til sölu.
Bæjarráð samþykkir að taka hagstæðasta tilboði eins og þau liggja fyrir við lok vinnudags 15. febrúar 2019. | | |
|
14. 1901036 - Vinabæjarmót í Noregi. | Fyrir bæjarráði lá erindi vegna vinabæjarmóts sem fram mun fara í Noregi í byrjun júlímánaðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna erindið fyrir bæjarfulltrúum og kanna vilja þeirra til þátttöku. | | |
|
15. 1902002 - Áfangastaðaáætlanir | Fyrir bæjarráði lá áfangastaðaáætlun fyrir Suðurland. Grunnhugsunin þar að baki er samstarf og samþætting vegna annarra áætlana á einstaka svæðum.
Bæjarráð þakkar kynninguna og vísir áfangastaðaáætlun til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. | | |
|
16. 1901014 - Ný reglugerð um Jöfunarsjóð sveitarfélaga | Fyrir bæjarráði lá til kynningar erindi um nýja reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Bæjarráð þakkar kynninguna. | | |
|
17. 1812026 - Lóðarúthlutunarreglur breytingar | Fyrir bæjarráði lágu drög að reglum um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með árorðnum breytingum. | | |
|
18. 1901041 - Sveitarfélögin og heimsmarkmiðin. | Fyrir bæjarráði lá til kynningar erindi frá Forsætisráðuneytinu um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun þar sem einnig var minnt á kynningu á verkefninu sem fara mun fram á Grand hótel 15. feb. nk.
Bæjarráð þakkar kynninguna. | | |
|
19. 1902016 - Framboð til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga. | Fyrir bæjarráði lá erindi frá Lánasjóði Sveitarféalga þar sem auglýst var eftir framboðum í stjórn LS sem fram fer á aðalfundi sjóðsins sem haldinn verður 29. mars. nk. á Grand Hótel.
Bæjarráð þakkar kynninguna. | | |
|
20. 1902031 - Öryggismyndavélakerfi í Sveitarfélaginu Ölfusi. | Fyrir bæjarráði lá samkomulag um verklag við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í Sveitarfélaginu Ölfusi. Um er að ræða þríhliða samkomulag milli Ölfuss, lögreglunnar á Suðurlandi og Neyðarlínunnar ohf. Með því samþykkir Sveitarfélagið Ölfus að greiða fyrir uppsetningu öryggismyndavéla og annast uppsetningar, merkingar og fl. Áætlaður kostnaður er um 2 milljónir.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið samhljóða fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita það.
| | |
|
21. 1902034 - Rammaskipulag. | Fyrir bæjarráði lá erindi frá ráðgefandi nefnd sem sinnir heildarendurskoðun á aðalskipulagi Ölfuss þar sem óskað var eftir 10 milljóna fjárveitingu til þess að vinna rammaskipulag samhliða aðalskipulagsuppdrætti fyrir Þorlákshöfn. Í þessu felst að fá ráðgjafa og hönnuði með ferska sýn til þess að móta framtíð fyrir uppbyggingu í bæjarstæði Þorlákshafnar sem gefu heildstæða sýn til framtíðar og myndar betri áætlun fyrir framkvæmdaraðila að vinna eftir. Þannig má til að mynda tryggja að græn svæði tengingar og íbúabyggð byggist upp á sem bestan hátt og landnýting verði sem vænlegust og hönnun bygginga falli að sýn samfélagsins.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða og felur starfsmönnum að vinna viðauka við fjárhagsáætlun þar sem það rúmast ekki innan núverandi áætlunar.
| | |
|