| |
1. 1902057 - Lóðarumsókn Sunnubraut. | |
Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af fleirri lóðum innan Í8 í aðalskipulagi þá er ekki hægt að verða við beiðninni. Nefndin leggur til að farið verði í vinnu við að deiliskipuleggja fleirri lóðir innan svæðisins, og lóðum úthlutað samkv. lóðarúthlutunarreglum sveitarfélagsins. Afgreiðsla: Synjað
| | |
|
2. 1903030 - Hellisheiði. umsókn um byggingarleyfi | |
Byggingaráform samþykkt, byggingarleyfi gefið út þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað inn. Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
3. 1902052 - Laxabraut 9 stækkun á lóð | |
Lóðarstækkun hafnað, afnot af lóð samþykkt. Sveitarfélagið Ölfus hefur nú þegar samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir tvær borholur (holum 14 og 15) á svæðinu. Tryggja skal að ekki verði röskun á svæðinu né óafturkræf umhverfisáhrif. SBU samþykkir afnot Laxa af lóðinni til borunnar og vatnsöflunnar, en svæðið skal ekki afgirt né lokað og tryggt skal að gönguleiðin sé greið. Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
5. 1903009 - Endurskoðun Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024. Skipulagslýsing | Lagt fram. Ekki voru gerðar athugasemdir við gögn. | | |
|
6. 1506070 - Þorlákshöfn Skipulagsmál á hafnarsvæði | |
Deiliskipulag samþykkt. | | | Gestir | Gísli Gíslason - 00:00 | |
|
7. 1810023 - Deiliskipulag, Matfugl Þórustaðir | |
Afgreiðsla: Deiliskipulag er samþykkt enda hefur það verið lagfært og uppfært vegna innkominna athugasemda. Með bréfi dagsett 10. janúar 2019 gaf Skipulagsstofnun umsögn um deiliskipulagið. Í níu liðum er farið yfir nokkur atriði. Sum atriðin koma fram í umsögn Minjastofnunar Íslands og frá Umhverfisstofnun. Hönnuður deiliskipulagsins leiðrétti uppdráttinn út frá athugasemdum Skipulagsstofnunar og einnig var skýrslan um umhverfisáhrif lagfærð í samræmi við ábendingar. | | |
|
8. 1903022 - Deiliskipulagsbreyting Iðnaðarsvæði Fjölgun lóða | |
SBU samþykkir að skipta Unubakka 23 upp í tvær lóðir og felur skipulagssviði framgang mála og vinna óverulega breytingu á deiliskipulagi. Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
9. 1903026 - Deiliskipulag áningarstaðar Reykjadal. | |
Í framhaldi að bókun bæjarráðs telur SBU nauðsynlegt að tryggja og bæta aðgengi að Reykjadal í Ölfusi. Dreifa þarf ágangi í Reykjadal honum til verndar og því og felur SBU starfsmönnum skipulags- og byggingarsviðs að hefja undirbúningsvinnu í samvinnu við landeiganda til þess að bæta aðgengi að Reykjadal í Ölfusi. Afgreiðsla: Samþykkt. | | |
|
10. 1903025 - Deiliskipulag 9-an | |
Kynntir eru möguleikar á að vinna breytingu á gildandi deiliskipulagi á Egilsbraut 9. Afgreiðsla: Lagt fram | | |
|
11. 1902043 - Kirkjugarður Þorlákskirkju | |
Til kynningar drög að deiliskipulagi þar sem kemur fram stækkun grafreita. Afgreiðsla: Lagt fram
| | |
|
12. 1802056 - Uppgræðslusjóður Ölfuss umsóknir. | Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
13. 1903005 - Orka náttúrunnar framkvæmdaleyfi fyrir niðurrennsli að HE-35 og HE-10 | |
Orka náttúrunnar fyrirhugað að þróa áfram niðurrennsli í tilraunaskyni í borholur sem boraðar hafa verið sem vinnsluholur en hafa ekki nýst sem slíkar. Borholurnar eru staðsettar í jaðri vinnslusvæðis og gætu því reynst vel sem niðurrennslisholur ef prófun á þeim reynist jákvæð. ON fékk framkvæmdaleyfi fyrir sambærilegri framkvæmd í holi HE-55 sem liggur vestan við Hverahlíð. Veitt var tímabundið leyfi fyrir þeirri framkvæmd með lagnir ofanjarðar. Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
14. 1903024 - Framkvæmdarleyfi. Borun tveggja vatnshola við Hellisheiðarvirkjun | |
Nefndin samþykkir erindið svo lengi sem það samræmist starfsleyfi Heilbrigðiseftirlitsins. SBU áréttar að svæðið er mjög viðkvæmt og mikilvægt að það ferska vatn sem notað er til kælingar komist ekki í snertingu við framleiðsluna áður en það er losað í svelgholu. Afreiðsla: Samþykkt | | |
|
15. 1810068 - Alifuglabú að Læk 2 | |
SBU hafði samþykkt málið á fundi nr. 97 sem haldin var 29. október 2018. SBU staðfestir fyrri bókun málsins. Svipuð mál hafa komið til skoðunar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (UUA). Sömu sjónarmið ættu við í máli þessu og fjarlægðartakmarkanir í reglugerðinni eiga þannig ekki við. Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
16. 1903029 - Stofnun lóða Vesturgljúfurs 2,4,6 og Gljúfurárholts lands 3 | |
Afgreiðsla: Samþykkt | | |
|
| |
4. 1902034 - Rammaskipulag. | |
Lagt fram | | |
|