1. 1904028 - Gatnagerð. Vesturbakki, Ölfusbraut |
Bæjarráð ræddi framvindu mála er varðar gatnagerð við Vesturbakka, Ölfusbraut. Fyrir liggur að lægstbjóðandi HB vélar ehf. uppfyllti ekki ófrávíkjanleg skilyrði útboðsskilmála og því ekki mögulegt að ganga til samninga við hann. Lögmaður HB véla ehf. óskaði eftir nánari rökstuðningi fyrir ákvörðun Ölfuss. Lögð voru fram drög LEX lögmannsstofu að svarbréfi til lögmanns HB véla ehf. Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við þann sem átti næstlægsta tilboðið Smávélar ehf. en gengið hefur verið úr skugga um að hann uppfylli öll skilyrði útboðsskilmála.
Þá samþykkir bæjarráð drög LEX lögmannastofu að svarbréfi til lögmanna HB véla ehf. Bæjarráð staðfestir framangreinda tilhögun og samþykkir drögin að svarbréfinu.
|
|
|