| |
1. 1907011 - Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Ölfuss 2020-2023 | Guðni Pétursson sviðsstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kom á fund nefndarinnar og greindi frá helstu þáttum í og fjárhags- og framkvæmdaáætlun Ölfuss 2020-2023 einkum þeim atriðum sem snúa að málefnum fjölskyldna og skólastofnana sveitarfélagsins.
Nefndin þakkar upplýsingarnar.
| | |
|
2. 1602028 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn: Skýrsla skólastjóra. | Skólastjóri fór yfir helstu fréttir af starfi skólans frá síðasta fundi. Greindi skólastjóri m.a. frá heimanámsstefnu og forvarnarstefnu sem kennarar hafa unnið að, og ýmsum komum gesta sem sótt hafa skólann heim undanfarið. Þá hafa ýmsir viðburðir verið við skólann, t.d. dagur íslenskrar tungu og dagur mannréttinda barna. Jafnframt greindi skólastjóri frá þeim ýmsu viðburðum við skólann sem tengjast jólunum og hafa ýmist farið fram eða eru framundan.
Nefndin þakkar upplýsingarnar.
| | |
|
3. 1912014 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn. Heimanámsstefna. | Skólastjóri kynnti heimanámsstefnu sem unnin hefur verið við skólann, og þar er m.a. fjallað um markmið með heimanámi, skipulag og hlutverk mismunandi aðila við heimanám barna.
Nefndin þakkar upplýsingarnar.
| | |
|
4. 1912013 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn. Forvarnaráætlun | Skólastjóri kynnti helstu þætti í forvarnaraáætlun skólans, þar sem finna má yfirlit yfir þær forvarnir sem unnið er að í mismunandi bekkjum við skólann í samstarfi við skólahjúkrunarfræðing og náms- og starfsráðgjafa.
Nefndin þakkar upplýsingarnar.
| | |
|
5. 1602030 - Leikskólinn Bergheimar: Skýrsla skólastjóra. | Leikskólastjóri greindi frá helstu þáttum í starfi skólans frá síðasta fundi, m.a. frá uppbroti í starfinu s.s. búningadegi í tengslum við Þollóween, gestum sem heimsótt hafa skólann, kynningu frá Brunavörnum Árnessýslum og jólaballi skólans sem haldið er í dag. Þá greindi leikskólastjóri frá breytingum á starfsmannahaldi, en nýr matreiðslumaður hefur verið ráðinn við leikskólann. Að endingu fjallaði leikskólastjóri um biðlista við skólann og hvernig staðan mun að öðru óbreyttu verða sú í haust að ekki fáist endilega pláss fyrir öll börn í kringum 18 mánaða aldur. Nefndin þakkar upplýsingarnar og leggur áherslu á að mikilvægt sé að huga þegar að viðbrögðum við fjölgun barna á leikskólaaldri í sveitarfélaginu. Eins og fram kom í kynningu á fjárhags- og framkvæmdaáætluna þá er farið að huga að frekari uppbyggingu vegna fjölgunar leikskólabarna í sveitarfélaginu.
| | |
|
6. 1805048 - Leikskólinn Bergheimar Skóladagatal. | Leikskólastjóri lagði fram skóladagatal 2019-2020 þar sem færðir hafa verið til starfsdagar vegna breytinga sem urðu á fyrirhugðri námsferð kennara á skólaárinu, og á breyttu dagatali eru starfsdagar gefnir upp í samræmi við breytta tilhögun á þeirri námsferð kennara. Vegna þessara breytinga hefur verið haft gott samráð við fjölskyldu- og fræðslunefnd, og jafnframt við foreldrafélag leikskólans.
Nefndin þakkar upplýsingarnar
| | |
|
7. 1809011 - Leikskólinn Bergheimar Ársáætlun leikskólans 2019-2020 | Leikskólastjóri kynnti ársáætlun leikskólans 2019-2020. Í henni er finna upplýsingar um húsnæðiskost skólans, deildaskipan, starfsmenn, þær nefndir sem tengjast leikskólanum, námsskrá og stefnu skólans, áherslur í kennslu, sérkennslu og skólaþjónustu og ýmsa aðra þætti sem hafa þýðingu fyrir starfið við skólann.
Nefndin þakkar upplýsingarnar.
| | |
|
8. 1711037 - Leikskólinn Bergheimar. Vistunartími barna. | Leikskólastjóri kynnti tillögu sína um að sett yrðu viðmið um hámarksviðveru barna við leikskólann, og byggir tillagan m.a. á 8. gr. reglugerðar um starfsumhverfi leikskóla, þar sem tilgreint er að æskilegt sé að dvalartími barna á leikskóla sé að jafnaði ekki lengri en níu klukkustundir á dag.
Nefndin fagnar tillögunni og telur mikilvægt að huga stöðugt að því hvernig börnum og fjölskyldum er búinn sem bestur aðbúnaður í sveitarfélaginu. Í því sambandi er þó engu að síður greina vel hvort og þá hvaða vandi sé til staðar, og hvernig honum verði best mætt af hálfu sveitarfélagsins. Í því skyni leggur fjölskyldu- og fræðslunefnd til að teknar verði saman rauntölur um vistunartíma þeirra barna sem eru skráð í 9 tíma vistun eða meira, á tímabilinu frá janúar fram í apríl n.k. Leggur nefndin til að tillögunni verði frestað til frekari umfjöllunar þegar þær upplýsingar liggja fyrir.
| | |
|
9. 1711035 - Leikskólinn Bergheimar: Verklagsreglur | Leikskólastjóri kynnti verklagsreglur leikskólans 2019-2020 sem lagðar verða fram til staðfestingar eftir áramót. Engar stórvægilegar breytingar eru á verklagsreglunum frá gildandi verklagsreglum, einkum má nefna að breytingar hafa orðið á XXXX.
Nefndin þakkar upplýsingarnar
| | |
|