| |
1. 2002002 - 5.000 tonna fiskeldi Landeldis ehf. við Laxabraut 21-25 | |
Sveitarfélaginu Ölfus hefur borist erindi þar sem Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn vegna áforma Landeldis ehf. um 5.000 tonna landeldi vestan Þorlákshafnar í umsögninni skal koma fram eftir því sem við á, hvort Sveitarfélagið Ölfus telji að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun. Einnig, eftir því sem við á, hvaða leyfi framkvæmdin er háð og varðar starfssvið umsagnaraðila. Skipulags- og umhverfisnefnd telur að nægjanlega sér gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, mótvægisaðgerðum og vöktun og leggur til við sveitarstjórn að hún taki undir álit nefndarinnar. Nefndin telur að umfang framkvæmda og tilgreindar mótvægisaðgerðir séu þess eðlis að umhverfisáhrif verði óveruleg sé þeim fylgt eftir. Í dag er starfandi samskonar starfsemi á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu með litlum umhverfisáhrifum og fiskeldi á landi, með tilheyrandi hreinsun á frárennsli og lítilli sleppihættu, er mun umhverfisvænna en fiskeldi í opnum sjókvíum. Að því sögðu vill nefndin leggja áherslu á eftirfarandi þætti: - Ekki hefur verið unnið deiliskipulag fyrir lóð Landeldis ehf. - Mikilvægt er að hreinsisíur í frárennsli sem framkvæmdaraðili lýsir í frummatsskýrslu virki sem skyldi og að eftirlit sé haft með virkni, m.a. með sýnatöku í frárennsli. - Frárennsli stöðvarinnar er stutt frá ósum Ölfusár og þar fara um þúsundir laxfiska (lax, sjóbirtingur, sjóbleikja) á hverju ári. Því er mikilvægt að ristar og sleppigildrur séu ávallt í lagi til að koma í veg fyrir blöndun eldisfiska við villta fiska. Ristar/sleppigildrur skulu vera við hvert ker sem og í sameiginlegu frárennsli stöðvarinnar. - Lífrænan úrgang frá stöðinni (dauð seiði, fóðurafgangar, seyra úr tromlusíu o.s.frv.) skal ekki geyma undir beru lofti heldur ávallt í lokuðum gámum/ílátum. - Hvatt er til snyrtimennsku og góðrar umgengni á lóð framkvæmdaaðila. - Mikilvægt er að aukin vatnstaka á svæðinu hafi ekki áhrif á aðra nærliggjandi vatnstöku. 2/2 Rekstur fiskeldisstöðvarinnar er háður starfsleyfi og er það mat sveitarfélagsins að á þáttum sem snúa að mótvægisaðgerðum og vöktun (t.d. sýnataka og meðhöndlun lífræns úrgangs) verði tekið við veitingu starfsleyfisins og í skilmálum þess eftir því sem þörf krefur. Slíkt hið sama á við um nýtingarleyfi Orkustofnunar vegna aukinnar vatnstöku. Skipulagsvald er í höndum Sveitarfélagsins Ölfuss sem einnig er leyfisveitandi vegna útgáfu á framkvæmda- og byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda. | | |
|
2. 1904023 - Mói - Uppbygging íbúðabyggðar | |
Afgreiðsla: Samþykkt að kynna lýsinguna skv. 1. mgr., 30. og 40. gr. Skipulagslaga 123/2010. | | |
|
3. 2002018 - Reglur um stöðuleyfi | |
Afgreiðsla: Lagt fram | | |
|
4. 1909048 - Kolefnisbinding- og uppgræðslugeta torfs í Þorláksskógum | |
Afgreiðsla: Skipulagsnefnd tekur vel í erindið og hugmyndir Carbon Par um kolefnisbindingu, bæði hvað varðar rannsóknina sjálfa og hugsanlega framtíðar þróun verkefnisins. Nefndin felur starfsmönnum skipulags- og umhverfisnefndar að finna með umsækjanda svæði innan Þorlákshafnarjarðarinnar og Þorláksskóga sem á skipulagslega samleið með öðrum áformum innan skógarins og skógræktarinnar í heild sinni. Sem lagt verður fyrir í nefndinni til staðfestingar. | | |
|
5. 1902043 - Kirkjugarður Þorlákskirkju - Skipulag | |
Afgreiðsla: Skipulags- og umhverfisnefnd er samþykk tillögunni og skal hún hljóta auglýsingu og málsmeðferð skv. 40. og 41. gr. skiplagslaga nr.123/2010. | | |
|
6. 1908034 - Deiliskipulag skíðasvæði Bláfjöllum | |
Afgreiðsla: Erindinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar eftir að brugðist hefur verið við athugasemdum.
| | |
|
7. 1612011 - Deiliskipulag Vötn. | |
Afgreiðsla: Samþykkt Tillagan skal hljóta afgreiðslu skv. 42. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild Stjórnartíðinda. | | |
|
8. 1808009 - DSK Skyggnir úr Kirkjuferjuhjáleigu | |
Afgreiðsla: Samþykkt Tillagan skal hljóta afgreiðslu skv. 42. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild Stjórnartíðinda. | | |
|
9. 1903025 - DSK Egilsbraut 9 - 9an | |
Afgreiðsla: Samþykkt Tillagan skal hljóta afgreiðslu skv. 42. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild Stjórnartíðinda. | | |
|
10. 1904036 - DSK Ferjukot | |
Afgreiðsla: Samþykkt Tillagan skal hljóta afgreiðslu skv. 42. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og birt í B-deild Stjórnartíðinda. | | |
|
11. 1910048 - DSK Akurholt | |
Afgreiðsla: Frestað. Gatnatengingar á uppdrætti eru ófullnægjandi og þarf að afla frekari upplýsinga og umsagna Vegagerðarinnar fyrir tengingum og sýna þær með skilvirkari hætti á uppdrætti. Ekki liggja fyrir staðfestingar á neyslu- og slökkvivatni fyrir byggðina á svæðinu. | | |
|
12. 1910065 - Unubakki 19 - Umsókn um lóð | |
Afgreiðsla: Samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu. | | |
|
13. 1910012 - Núpahraun 35-41 - Umsókn um lóð | |
Afgreiðsla: Samþykkt Húsin tvö eru í eðli sínu samtengd í umfangi og útliti og mótar fjögurra íbúða heild. | | |
|
| |
14. 2002006F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 10 | Fundargerð lögð fram til kynningar. | 14.1. 2001041 - Umsókn um lóð Afgreiðsla: Synjað
Þar sem 2. umsækjendur eru um lóðina nýtur umsækjandi nr. 1 Kríutangi ehf. forgang þar sem umsækjandi nr. 2. Kristin Bjarnason hefur nú þegar fengið úthlutaða lóða án þess að hafa hafið framkvæmdir samkv. 4. gr. lið 4.8. í Reglum um úthlutun lóða. | 14.2. 2002012 - Umsókn um lóð Afgreiðsla: Samþykkt | 14.3. 1912032 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt. | 14.4. 2001023 - Nesbraut 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt. | 14.5. 2002025 - Gljúfurárholt 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt. | 14.6. 2002015 - Gljúfurárholt land13 0 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt. | 14.7. 2001037 - Klettagljúfur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Afgreiðsla: Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt. | | |
|