| |
1. 1901020 - Dráttarbátur Þorlákshöfn | |
Afgreiðsla: Framkvæmda- og hafnarnefnd samþykkir að hafna öllum tilboðum sem bárust. Þá samþykkir nefndin að fela starfsmönnum sínum að fara þá leið til samninga um dráttabát sem útlistuð er í fyrirliggjandi minnisblaði og fellst í eftirfarandi: 1. Öllum tilboðum er hafnað. 2. Leitað verður eftir hentugum bát sem uppfyllir kröfurnar. Fengin skipamiðlari eða annar aðili sem sveitarfélagið treystir til verksins. 3. Þegar báturinn er fundinn verður sent út RIF (request for information) 4. Þegar svör eru kominn úr RIF þá er gengið til samningskaupa við þann sem býður best. 5. Send út VEAT (Voluntary Ex Ante Transparency Notice) tilkynning um að ætlunin sé að semja við þennan aðila um kaup. 6. Samningskaup.
| | |
|
2. 2001033 - Seatrade Med sýning | |
Afgreiðsla: Nefndin leggur til að virði þátttöku verði skoða og lagt fyrir bæjarstjórn | | |
|
3. 2002010 - Viðbygging leikskóla | |
Afgreiðsla: Gert er ráð fyrir hönnunarkostnaði í fjárhagsáætlun 2020, og leggur nefndin áherslu á að farið verði sem fyrst í þá vinnu til að undirbúa útboð á stækkun leiksskóla. Byrjað verði á þarfagreiningu á stækkun og hversu mikil stækkun er möguleg og æskileg á núverandi stað. Möguleikar lagðir fyrir nefndina á næsta fundi. | | |
|
4. 1910049 - Viðhaldsáætlun fasteigna sveitarfélagsins | |
Sviðstjóri og umhverfisstjóri kynntu helstu liði og fara yfir verkliði og gera grein fyrir forgangsröðun og í hvaða ferli undirbúningur er.
Nefndin bendir á að yfirleitt sé hagstætt að leita verðtilboða í viðhaldsframkvæmdir á vetrarmánuðum og hefja vinnu með vorinu. | | |
|
5. 2002005 - Gömlu réttirnar við Núpa | |
Þjónustumiðstöð hefur nú þegar hafið vinnu við að fjarlægja steypta veggi.
Nefndinn telur mikilvægt að bjargir Þjónustumiðstöðvar verði sem allra mest nýtt við verklegar framkvæmdir á sviðnu. Nefndin felur því sviðstjóra og umhverfisstjóra að ljúka verkinu enda tækjakostur Þjónustumiðstöðvar vel til þess fallinn. | | |
|
6. 1911008 - Verklegar framkvæmdir | |
Staða verklegra framkvæmda kynnt.
1. Gatnagerð Hraunshverfi áfangi 1. Töf hefur verið á verkinu vegna veðurfars í janúar og febrúar en hefur þó ekki áhrif á afhendingu lóða og hafa lóðarhafar hug á að hefja jarðvinnu á sínum lóðum næstu daga.
2. Viðbygging íþróttahúss Pálmatré mun ljúka við uppsetningu skv. útboði og samningi í mars. Vinna við frágang innanhús mun hefjast í framhaldinu. Fyrir liggur samþykki bæjarstjórnar á kaupum á búnaði og samningar þess efnis samþykktri þann 12.04.2018. Fyrir liggur að ekki hefur verið leita verðtilboða í alla þætti verksins á formlegan hátt við undirbúning verksins 2018 og það samræmist ekki núverandi innkaupareglum sveitarfélagsins Ölfus og ekki skv. þeim áherslum sem núverandi meirihluti hefur. Þar sem slíkir samningar liggja fyrir við einstaka verktaka og birgja búnaðar hefur nefndin ekki annað val en að fela sviðstjóra að vinna áframhaldandi vinnu og hafa húsið tilbúið til notkunar í ágúst 2020.
3. Viðbygging 9.an Skv. sviðstjóra er hönnun lokið og verður verkið boðið út í lok febrúar
4. Gatnagerð Hraunshverfi áfangi 2. Verkið verður boðið út núna í febrúar
5. Móttöku og flokkunarstöð Unnið er að hönnun svæðisins og mun vera leita verðtilboða í jarðvinnu og uppsteypu og stefnt er á að hafa svæðið tilbúið til notkunar í sumar 2020
6. Endurnýjun gatnalýsingar Sviðstjóri fór yfir endurnýjun gatnalýsingar í Þorlákshöfn.
7. Gatnalýsing dreifbýli. Nefndin ræddi gatnalýsingu í dreifbýli. Fyrir liggur að víða er brýnt að ráðast í endurbætur og nýframkvæmdir til að tryggja öryggi vegfarenda. Nefndin óskar því eftir að Vegagerðin ráðist tafarlaust í úttekt þar að lútandi og í framkvæmdir í framhaldi af því.
Nefndin ræddi einnig mikilvægi þess að gera úrbætur á gatnalýsingu við heimreiðar og samþykkir að fela starfsmönnum sínum að leggja minnisblað fyrir nefndina með umfjöllun um nauðsynlegar úrbætur.
Afgreiðsla: Framkvæmda og hafnanefnd þakkar ofangreindar upplýsingar. Nefndin vekur athygli bæjarstjórnar á því að nú þegar er búið að úthluta öllum lóðunum í áfanga 1 hinu nýja Hraunshverfi eða fyrir 32 íbúðir. Nefndin beinir því þess vegna til bæjarstjórnar að samþykkja viðauka og hefja tafarlaust framkvæmdir við áfanga 2 þannig að hægt verði áfram að tryggja hagkvæmar lóðir í Sveitarfélaginu.
Guðmundur Oddgeirsson óskar bókað Varðandi lið 2 vil ég taka fram að undirbúningur kaupa á tækjum og verkliðum vegna framkvæmdar við fimleikahús voru með þeim hætti sem almennt gilda hjá Sveitarfélaginu. Verða var leitað hjá umboðsaðilum og ákvörðun tekin útfrá því sem hægstæðast þótti.
Meirihluti óskar bókað: Fyrir liggur að ekki finnast gögn í skjalakerfi sveitarfélagsins sem staðfesta ofangreint. Hluti verklegra framkvæmda og áhaldakaupa var á forsendum munnlegra samninga og málið allt ekki með þeim hætti sem lög um opinber innkaup áskilja.
| | |
|
| |
8. 2002017 - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis | |
Afgreiðsla: Hafnar- og framkvæmdanefnd tekur undir með bæjarráði og fagnar tillögunni og þeim áhuga sem flutningsmenn sýna höfninni í Þorlákshöfn. Nefndin minnir á að það hefur þegar látið vinna forhönnun á breytingum sem gera myndi höfninni mögulegt að taka á móti skipum sem eru 180 metra löng og 34 metra breið en vitað er af áhuga til að sigla slíkum farþegaferjum reglulega milli Þorlákshafnar og hafna bæði í Bretlandi og meginlandi Evrópu. Nefndin telur því mikilvægt að meðal verkefna hópsins verði einnig að kynna sér þessar forsendur og tryggja fjármögnun til slíkra framkvæmda. Þá vill nefndin jafnframt bjóða fram aðstoð sína við störf starfshópsins sem vísað er til í tillögunni. | | |
|
| |
7. 1905015 - Fundargerðir Siglingaráðs. | |
Afgreiðsla: Nefndin leggur til að hafnarstjóri fari yfir viðbragðsáætlun frá 2017 með starfsmönnum hafnarinnar. Í fundargerð stjórnar hafnarsambands íslands frá 20. janúar 2020 kemur fram að þó svo að flutninga- og fiskihafnir séu í eigu sveitarfélaga þá eiga sveitarfélög engan fulltrúa í Samgönguráði. Hafnar og framkvæmdanefnd tekur undir það og býður fram fulltrúa frá sveitarfélaginu Ölfusi. | | |
|