| |
1. 2110015 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna landtöku sæstrengs frá Írlandi | |
Afgreiðsla: Hafnar og framkvæmdanefnd samþykkir framkvæmdaleyfi í samræmi við umsókn en með þeim fyrirvara að lega strengs í landi sé samhliða legu Selfosslínu 3 og að samningur kveði á um að komi til flutnings strengs sé það á kostnað eiganda strengsins. Landtaka strengs er við lóðarmörk Hrauns og Þorlákshafnar Þorlákshafnarmegin. Hafnar og framkvæmdanefnd leggur til við skipulags og umhverfisnefnd að lóð tengistöðvar í landi verði staðsett við lóðina Hafnarskeið 65. Mikilvægt er að skipulagsvinnu verði hagað þannig að framkvæmdir geti hafist eins fljótt og mögulegt er. | | | Gestir | Örn Jónsson - 00:00 | Þorvarður Sveinsson - 00:00 | |
|
2. 2110035 - Ný flotbryggja fyrir hafsögubát | |
Afgreiðsla: Nefndin vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar. | | | Gestir | Sigurður Ás Grétarsson - 00:00 | |
|
3. 2101012 - Framkvæmdaráætlun 2021 | |
Afgreiðsla: Staða verkefna kynnt. 1. Móttöku og flokkunarstöð. Vinna við lagnir, uppsetningu ljósastaura að ljúka. Vinna við uppsetningu girðingar hefst í vikunni, malbikað verður þegar girðinagarvinnu er lokið.
2. Gatnahönnun Móinn . Útboðsgögn liggja fyrir, Framkvæmdin boðin út um næstu helgi.
3. Gatnahönnun Vetrarbraut/Sunnubraut. Beðið er eftir gögnum frá gagnaveitunni annars eru útboðsgögn klár. Gert er ráð fyrir lokaútgáfu í vikunni og verkið boðið út í kjölfarið.
4. Laxabraut. Hönnun og magntaka á liggur fyrir verið er að ljúka við kostnaðaráætlun og verklýsingu, verkið boðið í innan 2 vikna.
5. Yfirborðsfrágangur Hraunshverfi áfangi 1. Lokið er við malbik gatna, steypu á kantsteinn, fylling í gangstéttar að mestu lokið. Gert er ráð fyrir að malbikað verði á næstu 2 vikum.
6. Leiksvæði Ráðhús Vinna við lýsingu er eftir, óska þarf eftir aukafjármagni í þann verklið
7. Gatnahönnun á nýju íbúðarsvæði 1. áfangi Gert er ráð fyrir að hönnun verði klár í lok árs og framkvæmdir fara inna 2022
8. Gatnahönnun iðnaðar- og hafnarsvæðis Frumhönnun/hæðarsetningar hafa verið skoðaðar klára þarf hönnun 2022.
9. Stofnlagnir að nýju íbúðarsvæði. Framkvæmdir ganga vel. Fleygun á fyrsta áfanga er að mestu lokið. Breyting var gerð á legu fráveitustofnar, m.a vegna hlikks sem setur var á Selvogsbraut og að samnýta skurð fyrir niðurföllum í götustæðið vegna hæðar klappar.
10. Gatnahönnun Vesturbakki. Gatnahönnun er tilbúin fyrir utan veitustofnanir, ekki gert ráð fyrir framkvæmd fyrr en 2022
| | |
|