| |
1. 2109048 - Styrkbeiðni landsmót hestamanna | |
Bæjarráð þakkar erindið en getur ekki orðið við því að þessu sinni.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
2. 2110007 - Beiðni um aukinn stuðning | |
Bæjarráð óskar Knattspyrnufélaginu Ægi til hamingju með frábæran árangur og samþykkir að greiða félaginu 500.000 kr. í sérstakan styrk vegna þess góða árangurs sem náðist á tímabilinu.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
3. 2110009 - Styrkumsókn ADHD samtakanna | |
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og bendir á að í dag er stuðningur við bæði fagfólk sveitarfélagsins og foreldra fyrst og fremst í gegnum Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings og því eftir atvikum eðlilegt að beina erindi sem þessu þangað.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
4. 2110006 - Framlenging á samning um efnistöku úr Lambafelli | |
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins og óskar eftir fundi með samningsaðilum.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2110008 - Minnisblað um lendingu ÍRIS fjarskiptastrengs í landi Sv.fél.Ölfuss | |
Bæjarráð fagnar framtakinu og telur það í senn auka öryggi Íslands hvað varðar öryggi gagnatengingu erlendis sem og skapa Ölfusi og þá sérstaklega Þorlákshöfn tækifæri á sviði upplýsingavinnslu og rekstri gagnavera.
| | |
|
| |
6. 2109049 - Líffræðileg fjölbreytni í borgum og bæjum | |
Bæjarráð þakkar erindið. | | |
|
7. 2110004 - Frjálsíþróttaaðstaða, nýframkvæmdir og viðhald eldri mannvirkja - Þjóðarleikvangur | |
Bæjarráð þakkar erindið. | | |
|