Dagforeldrar

UngbarnastóllDagforeldrar með starfsleyfi í Sveitarfélaginu Ölfusi eru:
 
Sigrún G. Þorgilsdóttir
Pálsbúð 13, 815 Þorlákshöfn
sími  867-5690
 
Guðrún Petrea Ingimarsdóttir
Pálsbúð 13, 815 Þorlákshöfn
sími 893-2147
 

Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar og setja sýna gjaldskrá sjálfir.

Til að fá starfsleyfi til daggæslu í heimahúsum þarf að uppfylla skilyrði sbr. reglugerð um daggæslu í heimahúsi nr. 907/2005.

Sveitarfélagið sér ekki um umsóknir fyrir börn hjá dagforeldri. Foreldrar/forráðamenn hafa sjálfir samband við dagforeldra þegar leitað er eftir plássi fyrir barnið.

Þegar foreldrar/forráðamenn velja dagforeldri fyrir barn sitt er mikilvægt að þeir kynni sér vel þjónustuna sem í boði og allan aðbúnað hjá dagforeldri.

Foreldrar/forráðamenn skulu gera skriflegan samning við dagforeldrið um dvalartíma og gjald fyrir vistunina.

Ákvörðun um vistun barnsins er ætíð á ábyrgð foreldra/forráðamanna.

Gott er að hafa samband við fleiri en eitt dagforeldri ef biðlisti skyldi vera til staðar.

Daggæsla í heimahúsi á að vera góð og uppbyggileg fyrir barnið og skal vera rekin af fagmennsku og umhyggju fyrir börnum. Foreldrar ættu að hafa þetta í huga þegar þeir velja dagforeldri fyrir barnið sitt. Gott er að hafa að leiðarljósi að foreldrar eru að kaupa þjónustu af dagforeldrum og því eðlilegt að gera kröfur um gæði. 

 
 
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?