Áhugaverðir staðir
Geitafell
Mynd 1 af 2
1 2

8.4.2010

Sveitarfélagið Ölfus er vestast í Árnessýslu. Heildarstærð þess er um 750 ferkílómetrar og eru íbúarnir yfir 2.000 talsins (tölur frá 2008). Helstu atvinnugreinar eru fiskveiðar og vinnsla, verslun og þjónusta, landbúnaður og iðnaður. Í dreifbýlinu eru margar góðar reiðleiðir, enda er mikið um hrossarækt og hestamennsku í Ölfusinu. Þéttbýlisstaður sveitarfélagsins er Þorlákshöfn með um 1.640 íbúa. Nafnið er dregið af Þorláki helga Skálholtsbiskupi (1133-1193) og fer tvennum sögum af tilkomu nafnsins. Önnur sagan segir að staðurinn hafi fengið þetta nafn eftir að Þorlákur biskup steig þar á land þegar hann kom frá biskupsvígslu 1178. Hin sagan segir að eigandi jarðarinnar hafi í sjávarháska heitið á Þorlák helga sér til liðsinnis og svo gefið Skálholti jörðina. Talið er að áður hafi jörðin heitið Elliðahöfn.

Útræði hófst snemma frá Þorlákshöfn. Meðan gert var út á áraskipum var ekki óalgengt að róið væri á 20-30 skipum frá Þorlákshöfn og hafa því íbúarnir verið um 3-400 yfir vertíðina. Núverandi þéttbýli myndaðist um og upp úr miðri síðustu öld í kjölfar uppbyggingar öflugrar útgerðar á vegum Meitilsins hf. Mikil fólksfjölgun varð einnig á 8. áratugnum eftir eldgosið í Heimaey.

Hægra megin á síðunni eru tenglar yfir á upplýsingasíður um einstaka staði í sveitarfélaginu.

 

Ölfus Municipality - Þorlákshöfn

Ölfus Municipality is the most westerly district in Árnessýsla.  It covers a total area of 750 km2 and has a population of over 2,000 people.  The most important industries are fishing, fish processing, retail services, agriculture and light industries.  Þorlákshöfn is the only town in the district, with 1,600 innhabitants.  It is named after St. Þorlákur, Bishop of Skálholt (1133-1193).

Fishing boats have put to sea from Þorlákshöfn for hundreds of years.  During the days when fishermen rowed out to sea, a fleet of 20-30 boats was common, and the population swelled to three of four hundred during the fishing season.  The modern town grew up around the successful Meitill hf. fisheries company in the middle of the last century.  The population increased again in the 1970s after an eruption on the island of Heimaey.

 


 


Risakrabbinn skoðaður

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica