Skipulags-, byggingar- og umhverfissvið
Hafnarbergi 1
815 Þorlákshöfn
Sími: 480 3800
Bréfasími: 480 3801
Netfang: sigurdur@olfus.is
Forstöðumaður: Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Megin viðfangsefni
Skipulags- og byggingarfulltrúi ber ábyrgð á rekstri skipulags-, byggingar- og umhverfissviðs og þeirra stofnana sem undir það heyra (sjá skipurit). Hann annast ráðningar lausamanna til þeirra starfa sem undir hann heyra, í samráði við bæjarstjóra. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur yfirumsjón með framkvæmdum bæjarsjóðs og stofnana hans og viðhaldi allra mannvirkja á vegum þessara aðila og annast tilheyrandi áætlanagerð.
Skipulags- og byggingarfulltrúi annast undirbúning, verkefnastjórn og eftirlit með framkvæmdum bæjarsjóðs.
Hægt er að fá samband við byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofum í síma 480-3800 eða með tölvupósti á sigurdur@olfus.is
Úttektir skal panta með minnst tveggja daga fyrirvara. Byggingarstjóri getur pantað úttektir á netfangið sigurdur@olfus.is eða í síma 480 3800.
Hægt er að senda fyrirspurnir um mál á netfangið sigurdur@olfus.is
| Áhaldahús |
| Búðahverfi - verkhluti B mynd |
| Búðahverfi - verkhluti B - skýring með loftmynd |
| Skýringar lausar lóðir - verkhluti B |
| Reglur um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Ölfusi |
Áætlanagerð
Umsjón með gerð kostnaðaráætlana og greinargerða vegna árlegra fjárhagsáætlana ásamt tilheyrandi kostnaðareftirliti.
Verklegar framkvæmdir
Ábyrgð á eftirliti með verklegum framkvæmdum bæjarsjóðs.
Hönnun og eftirlit
Verkefnisstjórn og umsjón með aðkeyptri hönnun og ráðgjafaþjónustu á tækni- og umhverfissviði.
Útboð og eftirlit
Umsjón með útboðum vegna verklegra framkvæmda, mat á tilboðum og samningagerð við verktaka og/eða birgja.
Eignasjóður
Ábyrgð á að viðhaldi húseigna sjóðsins sé sinnt í samræmi við fjárveitingar á hverjum tíma og séð um að gerð sé viðhaldsáætlun fyrir eignir sjóðsins.
Byggingareftirlit
Opinbert byggingareftirlit samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997, lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, húsafriðunarlögum nr. 104/2001 og lögum um náttúruvernd, heilbrigðisreglugerð, öryggisreglum og stöðlum.
Fasteignamat
Annast upplýsingaöflun fyrir fasteignamat samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr.6/2001.
Eignaskiptasamningar/yfirlýsingar
Yfirferð og áritun eignaskiptayfirlýsinga og eignaskiptasamninga samkvæmt lögum um fjöleignahús nr. 26/1994, 136/1995 og 127/1996.
Úttektir leiguhúsnæðis
Úttektir leiguhúsnæðis samkvæmt húsaleigulögum nr. 36/1994.
Lóðarblöð og lóðarleigusamningar
Útgáfa lóðarblaða og eftirlit með að gengið sé frá lóðarblöðum í samræmi við lóðaleigusamninga.
Skipulagsmál:
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss Deiliskipulög í Ölfusi
Landupplýsingakerfi
Uppbygging, varðveisla og viðhald gagngrunns fyrir landupplýsingakerfi Sveitarfélagsins Ölfuss.
Skjalavarsla
Viðhald og varðveisla uppdrátta og skjala vegna opinbers byggingareftirlits og skipulagsmála og í samræmi við ákvæði laga og reglna þar um.
Umhverfismál
Umsjón með opnum svæðum, göngustígum, skógræktarsvæðum, gróðursetningum og beitarlöndum. Framkvæmd og umsjón með viðhaldsáætlun opinna svæða.

