
Skólastjóri: Halldór Sigurðsson. Netfang halldor@olfus.is
Aðstoðarskólastjóri: Jón H. Sigurmundsson. Netfang: jon@olfus.is
Í grunnskólanum eru nú um 250 nemendur í 1. - 10. bekk
Stefna skólans
Sumarið 2010 var samþykkt skólastefna fyrir fræðslustofnanir Sveitarfélagsins. Hægt er að skoða stefnuna HÉR
Yfirskrift stefnunnar er: Vinátta - virðing - velgengni
Stefnan í hnotskurn
-Að skólar séu griðastaður nemenda.
-Að nám og kennsla taki mið af þörfum allra nemenda.
Að skólahúsnæði taki mið af fjölbreyttum þörfum nemenda og starfsfólks.
Að í öllu skólastarfi séu sjónarmið um lýðheilsu í fyrirrúmi.
Að samstarf stofnana sveitarfélagsins sé öflugt og áhersla sé á samnýtingu og samvinnu stofnana sem og einstaklinga.
Að í skólum starfi hæft og vel menntað starfsfólk.
Að nemendur eigi kost á samfelldum vinnudegi þar sem skólastarf og tómstundir mynda samfellda heild.
Að samvinna milli heimila og skóla einkennist af gagnkvæmri virðingu.
Að niðurstöður mats á skólastarfi nýtist til umbóta í skólunum.
Að hlúð verði að jákvæðum og góðum skólabrag með því að setja hugtök eins og jafnrétti, lýðræði, samvinnu, umburðarlyndi, gagnkvæma virðingu, réttindi og skyldur í öndvegi.
Skólinn er vinnustaður og býr ungt fólk undir framtíð sem er í örri þróun. Það skal því haft að leiðarljósi að hlutverk skólans er að leiða samfélagið en ekki að endurspegla það.



