Íbúðir aldraða
Starfsemi sem rekin er út frá Egilsbraut 9
Heimaþjónusta – dagdvöl aldraðra – félagsstarf aldraðra
Félagsþjónusta fyrir aldraða og öryrkja. Hvað er félagsleg þjónusta. Sú þjónusta byggir á hjálp til sjálfsbjargar.
Markmið er að styrkja og örva einstaklinga svo þeir geti búið við eðlilegt heimilislíf eins lengi og hægt er.
Heimaþjónusta
Starfsmenn í heimaþjónustu annast almenn heimilisstörf svo og innkaup og annað sem mætir persónulegum þörfum einstaklingsins. eins og félagslegan stuðning. hvatning til samveru inni og úti er mikilvægur þáttur í starfsemi. eins er reynt að meta hvað einstaklingurinn þarf hverju sinni á aðstoð að halda.
Dagvist aldraða
Rekin er dagvist aldraðra til húsa á Egilsbraut 9. Dagvist er stuðningsúrræði fyrir þá sem búa í heimahúsum og þurfa aðhlynningu yfir daginn.
Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun þeirra og stuðla að þeir geti búið lengur heima.
Reynt er eftir megni að hafa ofan fyrir einstaklingum eftir getu hvers og eins.
Dagvist er opin frá kl. 08:00 – 16:00 virka daga.
Eldhús er rekið á dagvist, morgunmatur, hádegismatur og síðdegiskaffi.
Eins er hægt að fá heimsendan mat frá dagvist.
Upplýsingar um félagslega þjónustu er hjá forstöðumanni:
Sigrúnu Theódórsdóttur sími 483-3614
eða sigrunth@olfus.is

