18 umsækjendur um stöðu bæjarstjóra í Ölfusi

Alls sóttu 18 aðilar um stöðu bæj­ar­stjóra í Ölfusi en um­sókn­ar­frest­ur rann út 2. júlí. Upp­haf­lega sóttu 23 um stöðuna en fimm drógu um­sókn sína til baka eft­ir að listi með um­sækj­end­um var birt­ur um­sækj­end­um.

Elliði Vign­is­son, frá­far­andi bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyj­um, og Gísli Hall­dór Hall­dórs­son, frá­far­andi bæj­ar­stjóri á Ísaf­irði, eru meðal um­sækj­enda. Þá eru Ásta Stef­áns­dótt­ir, sem lét af störf­um sem fram­kvæmda­stjóri sveit­ar­fé­lags­ins Árborg­ar, Magnús Stef­áns­son, frá­far­andi bæj­ar­stjóri í Garði, og Björn Ingi Jóns­son, frá­far­andi bæj­ar­stjóri á Höfn í Hornafirði, einnig meðal um­sækj­enda.

Nöfn umsækjenda í stafrófsröð eru þessu:

  1. Anna Greta Ólafsdóttir, sérfræðingur
  2. Ármann Halldórsson, framkvæmdastjóri
  3. Ásta Stefánsdóttir, bæjarstjóri
  4. Baldur Þórir Guðmundsson, útibússtjóri
  5. Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri
  6. Björn S. Lárusson, verkefnastjóri
  7. Daði Einarsson, verkefnastjóri
  8. Edgar Tardaguila, móttaka
  9. Elliði Vignisson, bæjarstjóri
  10. Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
  11. Glúmur Baldvinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri
  12. Gunnar Björnsson, forstjóri
  13. Linda Björk Hávarðardóttir, verkefnastjóri
  14. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri
  15. Ólafur Hannesson, framkvæmdastjóri
  16. Rúnar Gunnarsson, sjómaður
  17. Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri
  18. Valdimar O. Hermannsson, rekstrarstjóri

Lögð verður áhersla á að ráðningarferlið gangi hratt fyrir sig og að nýr bæjarstjóri hefji störf sem fyrst.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?