Álagning fasteignagjalda 2017

Olfus_merki
Olfus_merki
Álagning fasteignagjalda 2017
Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2017 er nú lokið.

Álagning fasteignagjalda 2017.

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2017 er nú lokið.

Sami háttur verður við innheimtu gjaldanna og síðustu ár þ.e.  sveitarfélagið mun ekki senda út álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga yngri en 70 ára.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsiðunni island.is  undir „Mínar síður“ og er  innskráning  með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.
Einstaklingar 70 ára og eldri fá  senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda álagningarseðla.
Þeir aðilar undir 70 ára sem þess óska geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla en verða þá að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480-3800 eða á póstfangið sigrun@olfus.is

Skrifstofa sveitarfélagsins veitir allar nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag svo og álagningu gjaldanna sjálfra.

 

 

                                                                                   Bæjarritari

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?