Álagning fasteignagjalda 2021 í Sveitarfélaginu Ölfusi

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir árið 2021 er nú lokið.

Sami háttur verður viðhafður við  innheimtu gjaldanna og síðustu ár þ.e.  sveitarfélagið mun ekki senda út  prentaða álagningarseðla fyrir fasteignagjöldum til einstaklinga sem fæddir eru 1947 eða síðar.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsiðunni  www.island.is  undir „Mínar síður“ og er  innskráning  með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.
Einstaklingar 74 ára og eldri fá  senda álagningar- og greiðsluseðla auk þess sem fyrirtæki og stofnanir fá senda álagningarseðla í pósti.
Þá viljum við vekja athygli á því að gjalddögum fasteignagjalda hefur verið fjölgað úr átta í tíu þ.e. frá 1. febrúar til 1. nóvember.
Þeir aðilar sem þess óska geta fengið heimsenda álagningar- og greiðsluseðla en verða þá að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 480-3800 eða á póstfangið kolla@olfus.is
Skrifstofa sveitarfélagsins veitir allar nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag svo og álagningu gjaldanna sjálfra. 

                                                                                     Þorlákshöfn 25. janúar 2021.

                                                                                     Sveitarfélagið Ölfus

 

 

                                                                                                 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?