Dagur leikskólans

 Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.  Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar.  Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

 

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.  Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.  

 

Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum,  ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt.  Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur“, foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum.   Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu starfi leikskólanna.  

 

Við minnum á að hægt er að nálgast bæklinginn sem gefinn var út fyrsta árið sem dagurinn var haldinn, á netslóðinni http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf

 

Við hvetjum alla sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, til að halda degi leikskólans á lofti og vonumst eftir góðri þátttöku.

 

Við bjóðum góðan dag, alla daga

 

Hrafnhildur Karlsdóttir

Formaður kynningarnefndar Félags leikskólakennara

 

Sigríður Lára Ásbergsdóttir

Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráðuneyti

 

Svandís Ingimundardóttir

Skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Sjöfn Þórðardóttir

Formaður Heimilis og skóla                                                                                                                                                                   

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?