Endurvinnslutunnur fyrir plast verða keyrðar út í dag og næstu daga

Endurvinnslutunnur fyrir plast verða keyrðar út í dag og næstu daga

Starfsmenn þjónustumiðstöðvarinnar byrja að keyra úr endurvinnslutunnur fyrir plast í dag, þriðjudaginn 6. júní.

Inni í tunnunni er lítil tunna sem er fyrir lífrænan úrgang. Sú tunna á að fara ofan í tunnuna fyrir almennt sorp. Einnig er græn fata og pokarúllur sem fara inn í hús til að safna saman lífræna úrganginum.

Hægt er að hafa samband við þjónustumiðstöðina ef það eru einhverjar spurningar s. 483 3803.

Breytingar hafa orðið á sorphirðu í sveitarfélaginu samhliða aukinni flokkun. Sorphirða á almennu sorpi og lífrænum úrgangi fer fram þriðju hverja viku á mánudögum og þriðjudögum í Þorlákshöfn og miðvikudögum í dreifbýli Ölfuss.
Sorphirða á plasti og blátunnu fer fram sjöttu hverja viku.

Uppfært sorphirðudagatal Ölfuss 2017

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?