Fréttatilkynning frá Aðgerðarstjórn almannavarna:

Aðgerðastjórn almannavarna á Suðurlandi kom saman til upplýsingafundar í dag. Farið var yfir veðurspá frá fundi með veðurstofu í dag. Gert er ráð fyrir því að aftur verði fundað í fyrramálið og staðan endurmetin.

Veðurspá fyrir nóttina í nótt gerir ráð fyrir úrkomubakka austan mýrdalssands í kvöld með allmikilli snjókomu sem getur orðið til þess að færð þar spillist. Þá eru líkur á að ferðaveður verði vont á fjallvegum seint í nótt og fram undir morgun meðan úrkoma verður í formi snjókomu eða slyddu.

Sem fyrr eru íbúar í umdæminu hvattir til að hreinsa frá niðurföllum og hreinsa grýlukerti og snjóhengur af þökum. Þá er ljóst að svellbunkar verða víða og flughált þannig að mannbroddar verða nauðsynlegur staðalbúnaður til göngu.

Vel er fylgst með stöðu mála hvað varðar ár og læki í umdæminu, einkum vestan til. Ljóst er til dæmis að ekki verður ráðlegt að reyna við gönguferðir í Reykjadali enda mikil úrkoma á Helliheiði með tilheyrandi vatnavöxtum í Varmá ofan á glæra svell á gönguleiðinni.

Tímalengd hlýindakaflans og úrkomumagnið mun að líkindum ekki nægja eitt og sér til að valda flóðum í Hvítá og Ölfusá. Hinsvegar er engin leið að sjá fyrir um stíflumyndanir og því full ástæða fyrir þá sem eiga útigang á þekktum flóðasvæðum að færa hann í hærra land. Þá ber alltaf að fara varlega nærri straumvatni þar sem hætta er á að ár ryðji sig.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?