Heimsókn frá Viðlagatryggingu Íslands

Mynd-heimsokn-VLT
Mynd-heimsokn-VLT
Heimsókn frá Viðlagatryggingu Íslands

Fulltrúar frá Viðlagatryggingu Íslands (VTÍ ) komu í heimsókn til Þorlákshafnar nú í vikunni

Fulltrúar frá Viðlagatryggingu Íslands (VTÍ ) komu í heimsókn til Þorlákshafnar nú í vikunni en heimsóknin er liður í átaki stofnunarinnar til að bæta þekkingu á hlutverki stofnunarinnar og skráningu opinberra  mannvirkja í eigu sveitarfélaganna sem vátryggð eru hjá VTÍ.

Fundarmenn áttu góðar og markvissar samræður um vátryggingavernd mannvirkja í eigu sveitarfélagsins og um mikilvægi þess að skráð verðmæti þeirra sé uppfært reglulega til að tryggja að eignirnar séu vátryggðar að fullu áður en vátryggingaratburður á sér stað.

Þá var einnig var rætt um mikilvægi samvinnu sveitarfélagsins og VTÍ til að stuðla að markvissri endurbyggingu sveitarfélagsins ef til tjónsatburðar kemur.

Á fundinum var rætt um mikilvægi þess að íbúar séu meðvitaðir um hvort  vátryggingavernd þeirra er í lagi.

Fram kom á fundinum að ef innbú er vátryggt almennri lausafjártryggingu hjá vátryggingafélagi rennur hluti iðgjaldsins til VTÍ og tryggir þannig vátryggingavernd innbúsins komi til tjóns af völdum jarðskjálfta, eldgosa, vatns-, aur- eða snjóflóða skv. skilgreiningum laga um VTÍ (55/1992).

Ef slík vátrygging er ekki til staðar greiðast engar bætur vegna innbús ef til tjóns kemur.

Allar fasteignir eru hins vegar skylduvátryggðar gegn náttúruhamförum og eru iðgjöldin innheimt samhliða brunatryggingum fasteigna hjá almennu vátryggingafélögunum.“

 

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?