Lífshlaupið hefst í dag

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. 

Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. ÍSÍ styðst við ráðleggingar Embætti landlæknis um hreyfingu. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti landlæknis.

Lífshlaupið stendur fyrir:
Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
Hreystihópar 67+ í þrjár vikur í febrúar

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 67+ eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Þín heilsa - Þín skemmtun

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?