Lúðrasveitin og Jónas Sigurðsson fengu menningarverðlaun

Frá afhendingu Menningarverðlauna Ölfuss 2013
Frá afhendingu Menningarverðlauna Ölfuss 2013

Menningarverðlaun Ölfuss voru veitt við hátíðlega athöfn í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss í gærkvöldi.

Menningarverðlaun Ölfuss voru veitt við hátíðlega athöfn í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss í gærkvöldi.  Athöfnin var þríþætt þar sem bæjarhátíðin Hafnardagar var formlega sett af nýjum bæjarstjóra Ölfuss og ný sýning Byggðasafns Ölfuss var opnuð auk afhendingu verðlauna.

Formaður menningarnefndar, Magnþóra Kristjánsdóttir afhenti verðlaunin sem voru svo sannarlega verðskulduð. Jónas komst ekki á athöfnina þar sem hann var að spila í Hörpunni þetta kvöld, en móðir hans, Ragna Erlendsdóttir tók við verðlaununum fyrir hans hönd. Lúðrasveitin var fjölmenn á staðnum þó einhverja hafi vantað og spilaði nokkkur lög við góðar undirtektir gesta.

Verðlaunin eru afhent annað hvert ár í kjölfar tilnefninga. Þetta er í fyrsta skipti sem verðlaunin eru tvískipt, en hið stóra verkefni sem Jónas og lúðrasveitin fóru í á síðasta ári og endaði með útgáfu hljómdisks og tónleikum í reiðhöllinni var þess eðlis að ekki var annað hægt en að heiðra þá sem fyrir því stóðu.

Stefnt er að því að fá Lúðrasveitina og Jónas til að flytji prógrammið sitt aftur á tónleikum í Þorlákshöfn í haust á Tónum við hafið.

Umfjöllun um viðburðinn og sérlega fallegar myndir er hægt að skoða á nýjum fréttamiðli.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?