Mikil stemning fyrir Hafnardaga

Hafnardagar 2012
Hafnardagar 2012
Mikil stemning var síðastliðna helgi þegar efnt var til leikjadags í aðdraganda Hafnardaga, bæjarhátíðar Þorlákshafnar.

Mikil stemning var síðastliðna helgi þegar efnt var til leikjadags í aðdraganda Hafnardaga, bæjarhátíðar Þorlákshafnar. Í flestum hverfum sem skipt er eftir litum, hafa verið skipuð ráð, sem m.a. höfðu það hlutverk að skipuleggja leikjadaginn auk þess að vinna að skreytingum í hverfum, undibúa hverfagrill og æfa skemmtiatriði sem boðið verður upp á næstkomandi föstudag í skrúðgarði Þorlákshafnar. Það er mikil stemning í Ölfusinu og ekki er ónýtt að fá þetta dýrindis veður.

Á fimmtudaginn klukkan 20:00 verða Hafnardagar settir formlega og þá verður einnig opnuð sýning á Bæjarbókasafni Ölfuss, þar sem sýndir verða munir sem Kristófer Bjarnason færði safninu. Kristófer starfaði lengi sem staðarhaldari við Strandarkirkju og var alla tíð sérlegur áhugamaður um uppbyggingu byggðasafns í Ölfusi. Á sýningunni verður stiklað á stóru um sögu Selvogsins og safnarann Kristófer Bjarnason. Sýningin mun standa yfir í allt sumar og verður opin á opnunartíma safnsins.

 Áfram heldur dagskrá alla vikuna og fram á sunnudaginn, en á laugardeginum verður efnt til hefðbundinnar sjómannadagskrár á bryggjunni með tilheyrandi kappróðri, koddaslag, siglingum og leikjum fyrir börnin. Ennfremur stýrir Hjalti Úrsus keppninni um Sterkasta mann Íslands og um kvöldið verður farið í leiki í fjörunni og kveikt á litlum varðeldi. Á sunnudeginum færist hátíðarsvæðið yfir í skólann þar sem markaður verður staðsettur, boðið verður upp á leikrit fyrir yngstu börnin og öll fjölskyldan getur tekið þátt í útilitasmiðju. Hægt er að skoða dagskrá vikunnar á vefsíðunni og síðan er hægt að fylgjast með útsendingum á Útvarp Hafnardagar bæði á FM 106,1 og um netið á radio.is.

 

Meðfylgjandi myndir voru teknar á leikjadeginum þar sem allir skemmtu sér í góða veðrinu. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?