Molta fyrir íbúa

Molta 1
Molta 1

Það hefur verið ákveðið að bjóða íbúum sveitarfélagsins aftur upp á Moltu frá Gámaþjónustunni eins og gert var síðasta sumar

Það hefur verið ákveðið að bjóða íbúum sveitarfélagsins aftur upp á moltu frá Gámaþjónustunni eins og gert var síðasta sumar.  Molta er tilvalin til þess að setja td. ofan á trjábeð.  Þegar moltan er búin til hitnar hún mjög mikið og má því segja að hún sé gerilsneydd og án allra illgresisfræja.  Moltan samanstendur af lífrænum úrgangi s.s. elduðum matarleifum, ávöxtum, grænmeti og kurluðum trjágreinum.  Ferlið tekur um 4 mánuði og nær hitinn á ferlinu upp í 70°c.

Með bestu kveðju og von um að fólk nýti sér þetta.

Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Ölfus og Gámaþjónustan.

Ps. Fólk er beðið um að ganga vel um þegar það sækir sér moltu og hreinsa upp eftir sig ef það sullast eitthvað niður.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?