Náttúran.is hlaut umhverfisverðlaun Ölfuss 2015

Umhverfisverðlaun 2015 - II
Umhverfisverðlaun 2015 - II
Umhverfisverðlaun Ölfuss 2015 hlaut Náttúran.is fyrir metnaðarfulla vefsíðu um umhverfismál sem á jákvæðan hátt hvetur almenning og fyrirtæki til að skapa sjálfbært samfélag.

Illugi Gunnarssson mennta- og menningarmálaráðherra afhenti umhverfisverðlaun Ölfuss á Sumardaginn fyrsta við hátíðlega athöfn á Landbúnaðarháskólanum á Reykjum í Ölfusi.

Umhverfisverðlaun Ölfuss 2015 hlaut Náttúran.is fyrir metnaðarfulla vefsíðu um umhverfismál sem á jákvæðan hátt hvetur almenning og fyrirtæki til að skapa sjálfbært samfélag.

 

Stofnendur síðunnar þau Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson hafa með síðunni innleitt nýja hugsun í umhverfisvitund Íslendinga.

 

Á vefsíðunni eru á einum stað aðgengilegar leiðbeiningar sem auðvelda almenningi og fyrirtækjum að taka upp umhverfisvænni lífsstíl. Þar er hægt að fá upplýsingar um umhverfismál heimilisins, um orkusparnað, vistvæn innkaup, betri nýtingu matvæla, sorpflokkun, um hvernig skuli flokka hluti og hvar sé hægt að skila hverjum hlut, þar er að finna skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig, sem oft vefst fyrir fólki. Einnig geymir vefurinn fróðleik um hvernig hægt sé að forðast hættuleg efni við innkaup á vörum, þar er yfirlit yfir aukaefni í matvörum og skilgreiningar á umhverfismerkingum.“

 

Frá upphafi hefur verið leitast við að nota nýjustu tækni til að miðla upplýsingum og fræðslu til notenda. Þó þannig að ekki skapist tæknilegir þröskuldar heldur geti allir nálgast efnið með almennum búnaði og almennri tækniþekkingu. Auk þess leggur Náttúran.is áherslu á að fylgja tækniþróunum og nýjungum eftir til að höfða til ungs fólks og auka áhrifamátt skilaboðanna.

 

Aðaláherslan er á að þjóna hinum almenna neytanda með áreiðanlegum upplýsingum um allt sem snertir umhverfi okkar og heilsu. Þar er allt undir, nærumhverfi okkar og náttúran sjálf sem og heimilið, neyslan og fyrirtækin sem upplýstir borgarar vilja fá til aðstoðar við að skapa sjálfbæra framtíð. Markmiðið er að gera neytendum umhverfisvænar lausnir sýnilegri og aðgengilegri með því að tengja á milli vistvænnar aðferðafræði á öllum sviðum og raunverulegs vöru- og þjónustuframboðs í landinu. Til að ná markmiðum sínum þróar Náttúran stöðugt nýja þjónustuliði.

 

Frumkvöðull vefsins er Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmaður en hún og maður hennar Einar Bergmundur Arnbjörnsson tölvunarfræðingur mynda kjarnateymi Náttúran.is

Náttúran.is er staðsett í Alviðru í Ölfusi.

 

Verðlaunin eru veitt þeim sem sýnt hefur einstakt framtak á sviði umhverfismála. Við valið er horft til þeirra fyrirtækja, stofnana eða einstaklinga innan sveitarfélagsins sem láta sig umhverfismál varða, hafa mótað sér umhverfisstefnu eða á annan hátt verið til fyrirmyndar hvað varðar umhverfismál.

Tilkoma þessara verðlauna er að með þeim megi vonandi auka á umhverfisvitund íbúa og fyrirtækja og hvetja þau til að láta sig umhverfismál varða.

 

Það er skipulags-byggingar- og umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss sem velur þann sem hlýtur verðlaunin ár hvert.

 

Umhverfisverðlaun Ölfuss voru núna veitt í fjórða sinn núna en áður hafa Eldhestar Völlum Ölfusi, Grunnskólinn í Þorlákshöfn og Icelandic Water Holding eða Vatnsverksmiðjan að Hlíðarenda í Ölfusi hlotið þau.

 

Sveitarfélagið Ölfus óskar þeim Guðrúnu og Einari til hamingju með metnaðarfulla vefsíðu og þeirra frumkvöðlastarf á sviði náttúruverndar.

 

Verðlaunagripurinn var unnin af Dagnýju Magnúsdóttur sem rekur Hendur í Höfn í Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?