Reykjadalur – gönguleiðin verður opnuð á hvítasunnudag

Nýja brúin yfir Hengladalaá
Nýja brúin yfir Hengladalaá

Gönguleiðin inn Reykjadal mun opna hvítasunnudag 31. maí eftir lokun undanfarandi vikna.

Á lokunartíma hefur gönguleiðin verið endurbætt og ný brú sett yfir Hengladalaá.  Nýja brúin leysir af hólmi gömlu staurabrúna sem var það fyrir.  Nýja brúin er smíðuð af Límtré á Flúðum og er hin veglegasta.

Göngustígurinn hefur verið færður frá hverunum í hlíðinni í dalnum en þar hafði skapast mikið hættuástand.  Brúin sem þar var yfir hverinn hefur verið fjarlægð. 

Mikilvægt er að göngumenn taki tillit til aðstæðna og séu meðvitaðir um að verið er að fara um svæði þar sem hverir geta skapað hættu og verið hættulegir á mörgum stöðum.  Ávallt skal fylgja merktum gönguleiðum.

Gestir eru beðnir um að ganga snyrtilega um og taka sundföt og handklæði með sér þegar svæðið er yfirgefið svo og annað rusl.  Við gönguleiðina og við baðstaðinn eru engin salerni né ruslafötur og gert er ráð fyrir að það sem kemur í dalinn fari allt þaðan aftur.  Þá er minnt á reglur útgefnar af sóttvarnalækni vegna Covid og að almenn skynsemi sé höfð í fyrirrúmi sem og ábendingar um fjarlægðir milli manna.  Minnt er á að ekki er heimilt að tjalda í Reykjadal.

Unnið verður áfram að endurbótum á gönguleiðinni á vegum starfshóps um uppbyggingu í Reykjadal.  Landvörður á vegum Umhverfisstofunar verður að störfum í Reykjadal í sumar gestum til halds og trausts og til leiðbeiningar um almenn umgengni.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?