Róbert Karl og blýanturinn í Galleríinu undir stiganum

Mánudaginn 8. janúar, opnar ný sýning í galleríinu. Að þessu sinni sýnir Þorlákshafnarbúinn Róbert Karl Ingimundarson blýantsteikningar. Myndirnar á sýningunni eiga sumar fyrirmyndir í raunveruleikanum en aðrar eru hugasmíð Róberts.

Sýningin stendur út janúarmánuð og opnunin hefst kl. 17, Bæjarbókasafnið býður upp á kaffi og konfekt.

Öll Velkomin!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?