Rokktónleikar í Þorlákshöfn

Ranarokk var upprunalega tónlistahátíð í Þorlákshöfn fyrir rúmum 15 árum þar sem bílskúrsbönd af Suðurlandi komu saman og spiluðu eins og enginn væri morgundagurinn. Að undirlagi Hjartar Freys Jóhannssonar eða Dötta, hefur verið ákveðið að endurvekja þRanarokk 2010essa hátíð og ef vel tekst til, verður hún síðan haldin árlega.

Hátíðin verður haldin næstkomandi laugardag, þann 19. júní. Fyrri hluti dagskrár verður frá 17:00 til 19:30, þar sem opið verður fyrir alla aldurshópa.  Meðal þeirra sem fram koma eru Stg. Millets Misbehavious Daughter, The Assasin of a Beautiful Brunette, Dötti, Nögl og Júlí Heiðar. Aðgangur er 600 krónur.

Frá 19:30 til 21:00 verður hlé á tónlistardagskrá á meðan Ráðhúskaffivertinn framreiðir hlaðborð með rokkuðum kræsingum. Hlaðborðið kostar 2.500 kr. á mann, 3.500 ef keyptur er miði á tónleikaveisluna framundan í leiðinni.

Klukkan 21:00 hefjast tónleikar að nýju en fyrir seinni hlutann er 18 ára aldurstakmark og agangur 1.500 kr. Meðal þeirra sem koma fram um kvöldið eru Stg. Millets Misbehavious Daughter, Ashton Cut, KAbear, The Assasin of a Beautiful Brunette, Dötti, Nögl.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?