Samþykkt að greiða öll nauðsynleg námsgögn.

Sveitarfélagið Ölfus hefur ákveðið að grunnskólanemendur í Sveitarfélaginu Ölfusi fái ókeypis námsgögn þegar skólastarf hefst á næstu dögum. Ákvörðun um þetta var tekin nú í dag, á fundi bæjarráðs þann 17.ágúst 2017.

2. 1708005 - Fræðslumál: Kostnaður vegna námsgagna

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

"Bæjarráð Ölfuss samþykkir að frá og með hausti 2017 fái grunnskólanemendur í Sveitarfélaginu Ölfusi öll nauðsynleg námsgögn án endurgjalds.
Kostnaði vegna tillögunnar verði vísað til viðaukagerðar við fjárhagsáætlun ársins".

Fram til þessa hefur grunnskólinn séð um öll innkaup á námsgögnum fyrir nemendur gegn hóflegu gjaldi.

Samþykkt samhljóða.

 Er þetta liður í að gera Sveitarfélagið Ölfus að betri búsetukosti fyrir barnafjölskyldur.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?