Tilkynning frá byggingarfulltrúa um gæðastjórnunarkerfi hjá hönnuðum, byggingarstjórum og iðnmeisturum

Merki Ölfuss
Merki Ölfuss
Tilkynning frá byggingarfulltrúa um gæðastjórnunarkerfi hjá hönnuðum, byggingarstjórum og iðnmeisturum.

Samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 eiga allir hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar að vera komnir með gæðastjórnunarkerfi skráð hjá Mannvirkjastofnun frá og með ársbyrjun 2015.

Ekki er tekið á móti hönnunargögnum eða skráningu á iðnmeisturum eða byggingarstjórum nema að viðkomandi aðili sé á lista MVS og að hann eða hún hafi tekið upp gæðastjórnunarkerfi frá og með 1. janúar 2015, sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010.

Samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 eiga allir hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar að vera komnir með gæðastjórnunarkerfi skráð hjá Mannvirkjastofnun frá og með ársbyrjun 2015 (sjá vefsíðu Mannvirkjastofnunar). Óheimilt er frá 1. janúar 2015 að taka við uppdráttum frá hönnuðum sem ekki eru með skráð gæðastjórnunarkerfi hjá Mannvirkjastofnun til afgreiðslu. Þó má taka við leiðréttum gögnum vegna erinda sem hefur verið frestað á afgreiðslufundi fyrir áramótin. Einnig er óheimilt að skrá byggingarstjóra eða iðnmeistara á verk frá 1. janúar 2015 ef þeir hafa ekki skráð gæðastjórnunarkerfi hjá Mannvirkjastofnun.

 

Sigurður Ósmann Jónsson skipulags- og byggingarfulltrúi.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?