Tilkynning frá Veitum: Heitavatnslaust miðvikudaginn 15. ágúst

Tilkynning frá Veitum:

Miðvikudaginn 15. ágúst þurfum við að loka fyrir heita vatnið í Þorlákshöfn og Ölfusi. Áætlað er að loka fyrir vatnið klukkan 09:00 og að það verði komið á aftur klukkan 21:00. Lokunin hefur áhrif á alla íbúa og öll fyrirtæki í Þorlákshöfn ásamt íbúa og fyrirtæki milli Þorlákshafnar og borholu Veitna á Bakka (sjá mynd). Ef við opnum fyrir vatnið fyrr eða þurfum að hafa lokað lengur þá má finna upplýsingar um það á heimasíðu www.veitur.is á meðan á framkvæmdinni stendur.

Við erum að taka í notkun nýja 7,2km langa aðveituæð fyrir heitt vatn milli borholu Veitna á Bakka og Þorlákshafnar og er þá endurnýjun á stofnæðinni lokið. Lokunin verður einnig nýtt til að sinna viðhaldi á borholu á Bakka.

Vinsamlegast gætið þess að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Þrátt fyrir að veðurútlit sé þokkalegt þá ráðleggjum við ykkur að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni inni hjá ykkur.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?