Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Lógó SASS
Lógó SASS

Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

  • Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
  • Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
  • Að styðja við atvinnuskapandi- og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn  www.sass.is  

Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna á vefnumwww.sass.is  


Við viljum vekja athygli á samstarfsaðilum okkar, hópi ráðgjafa sem veita aðstoð við gerð

umsókna í sjóðinn. Hér má sjá yfirlit yfir ráðgjafa og starfsstöðvar þeirra.



Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustuvettvangur um hagsmunamál sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.

Austurvegi 56
800 Selfoss
480-8200
sass.is

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?